Ægir - 01.02.1990, Blaðsíða 38
90
ÆGIR
2/90
NÝ______
FISKISKIP
Jökull SK 33
Nýtt frambyggt stálfiskiskip, m/s Jökull SK 33, kom
til heimahafnar sinnar, Sauöárkróks, 22 nóvember
s. I. Skipiö er smíðað hjá Ustka Shipyarcl, Ustka í Pól-
landi, smíöanúmer PA 5005. Skipiö er sérstaklega
búið til tog- og dragnótaveiöa. ískipinu eraö hluta til
notaöur véla- og tækjabúnaöur, m.a. aðalvél oggír.
jökull SK kemur í staö Týs SK 33 (862), 40 rúmlesta
eikarbáts, smíöaöur á Fáskrúðsfirði áriö 1946, sem
hefur veriö úreltur. Skipið er í eigu Jökuls h.f., Sauöár-
króki. Skipstjóri á skipinu er Sævar Steingrímsson, og
framkvæmdastjóri útgeröar er Steingrímur Garöars-
sun.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipið er
með eitt þilfar niilli stafna, gafllag skut, lokað hval-
baksrými fremst á þilfari og stýrishús aftantil á hval-
baksþilfari.
Mesta lengd ......................... 19.52 m
Lengd milli lóðlína (HVL) ........... 16.00 m
Lengd milli lóðlína (Kverk) ......... 15.00 m
Breidd (mótuð) ....................... 5.80 m
Dýpt að þilfari ...................... 2.95 m
Eiginþyngd ............................. 95 t
Særými (djúprista 2.50 m) ............. 139 t
Burðargeta (djúprista 2.50 m) .......... 44 t
Lestarrými ............................. 62 m'
Brennsluolíugeymar (m/daggeymi) . 12.0 m3
Ferskvatnsgeymar ...................... 3.2 m3
Brúttótonnatala 72 BT
Rúmlestatala 68 Brl.
Skipaskrárnúmer ...................... 1997
1 1 ■
JLJ
Jökull SH 33 í heimahöfn. Ljósmynd: Stetan Pedersen.