Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.1992, Side 21

Ægir - 01.09.1992, Side 21
9/92 ÆGIR 461 9and með tveggja ára meðaltal. ar með yrði niðurstaðan áþekk JV| sem getið hefur verið hér: ^hverfi ræður miklu og nýliðun er að mestu ráðin þegar fiskurinn er orðinn tveggja ára. 1X1 uPpbyggirigu Af myndum 1-9 má Ijóst vera stórir árgangar haldast stórir ens farið er að veiða úr þeim. annig æftj a(j vera aug|jóst að Unnt er að geyma fisk í sjó og á- Va*ta árgang meðan einstaklingar stœkka og þyngjast, allt þar til nattúruleg afföll eru meiri en sem nurnur Þyngingu. Árgangar týnast e ki í geymslu! Ekki þarf flókin '‘'sindi til að draga þá ályktun að vevL6r að by8§ja uPp mikið 'údan stofn með því að draga Ur veiðum. Hér er ekki átt við að Uu a nýliðun heldur einfaldlega , eyfa einstaklingunum að auka þyn8d sína. s kyrirÚggjandi gögn benda sem- J'h1 eindregið til þess að ekki tve 111 jðg óregluleg afföll eftir 88ja ára aldur og 0-1 árs vísi- tölur gefa nokkra vísbendingu um hvað koma skal. Þannig er ekki hægt að reikna með góðri nýliðun úr þeim árgöngum sem hafa verið mældir lélegir. Hins vegar er hægt að byggja upp stofninn með því að nýta þá nýliða sem til eru. í Ijósi þess hve lengi nýliðun hefur verið léleg og að þetta gerist á tíma þegar hrygningarstofn er í lægð hlýtur einnig að vera nær- tækt að reikna með að slík upp- bygging hrygningarstofnsins gefi auknar líkur á bættri nýliðun. í grein sinni komast þeir Þórólf- ur, Guðni og Sigurður að þeirri niðurstöðu að hámarksafrakstur úr fiskistofnum sé fyrst og fremst háður umhverfisveiflum og að elta verði þessar sveiflur ef há- marksafrakstur eigi að nást. Þetta sjónarmið er réttlætanlegt þegar um er að ræða skammlífa fiska sem oft hrygna aðeins einu sinni. Stjórn loðnuveiðanna er gott dæmi um að þessu sjónarmiði sé fylgt. Þetta á hins vegar ekki við um langlífari tegundir sem hrygna oft og þyngjast verulega eftir að Mynd 9 o o 00 5 'CB ,CQ .0) -CL c c «o ! o o CM o 05 83 84 85 82 87 88 81 86 500 1000 Vísitala 4. ár hrygningaraldri er náð. Þá er unnt að jafna aflasveiflur vegna breyti- legrar nýliðunar en ná samt há- marksafrakstri. Þetta er einmitt ein megin- ástæða þess að lagt hefur verið til á undanförnum áratugum að draga úr sókn til að byggja upp þorskstofninn. Veiðarnar verða þá ekki eins háðar uppvaxandi ár- göngum og um leið er reynt aö draga úr nýliðunarsveiflunum með stærri hrygningarstofni. Ranghugmyndir Auk þeirra annmarka sem hér hefur verið bent á í tölfræði þeirra Þórólfs, Guðna og Sigurðar verð- ur ekki hjá því komist að leiðrétta nokkrar forsendur sem þeir gefa sér. í fyrsta lagi gefa þeir félagar sér sem forsendu að stærð hrygn- ingarstofns skipti ekki máli. Slíkt er með ólíkindum, því sáraeinfalt er að prófa líkan þar sem hrygn- ingarstofninn er tekinn með hita- stiginu til að spá fyrir um nýliðun. Þeir félagar virðast ekki þekkja t.d. niðurstöður Jóns Ólafssonar (1985) þar sem slíkar aðferðir voru notaðar til að finna sameig- inleg áhrif umhverfis og hrygning- arstofns á nýliðun. Jafnvel þótt þeir félagar hefðu beitt réttum reikniaðferðum, þ.e. notað betri mælikvarða á nýliðun, og jafnvel þótt þeir hefðu ekki fundið neitt samband við hrygn- ingarstofninn (þeir reyndu það ekki), þá er ekki hægt að draga þær ályktanir sem þeir draga í sinni grein. Ein ályktunin er að „uppblöndunarsvæðið frá Vest- fjarðakjálka að straumaskilum í austri ráði mestu um afkomu". Þessi ályktun er næsta fráleit þvf líkan þeirra félaga skýrir aóeins um 36% af breytileika nýliðunar- innar. Það þýðir að megnið af breytileikanum er óútskýrt! Þar með er ekki hægt aó draga neina ályktun um hvað „ráði mestu um afkomu".

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.