Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Page 14
8
Tímarit lögfratSinga
Dómur
Viðstaddir dómarar: Dómsforseti Basdevant, varadómsfor-
seti Guerrero, dómarar: Alvarez, Hackworth, Wini-
arski, Zoricic, De Visscher, Sir Arnold McNair, Klae-
stad, Badawi, Pasha, Read, Hsu Mo; dómritari
Hambro.
Dómurinn, skipaður eins og að ofan segir, kveður upp
svolátandi dóm:
Hinn 28. september 1949 lagði ríkisstjórn Hins sameinaða
konungsrikis Stóra-Bretlands og Norður-lrlands fram á
skrifstofu dómritarans málssóimarskjal á hendur konungs-
ríkinu Noregi, þar sem beiðst er dóms um það, hvort gildar
séu eða ógildar að alþjóðalögum markalínur hins norska
fiskiveiðasvæðis fyrir þeim hluta Noregs, sem liggur norð-
an 66° 28,8' (eða 66° 28'48") norðl. br., en kveðið var á um
markalínur þessar rneð konungsúrskurði frá 12. júlí 1935
og breytingum, sem á honum voru gerðar með úrskurði frá
10. desember 1937. 1 málssóknarskjali er skírskotað til yf-
irlýsinga, þar sem Hið sameinaða konungsríki og Noregur
hafa skuldbundið sig til að hlíta lögsögu dómstólsins sam-
kvæmt 36. gr., 2. málsgr., stofnskrár dómsins.
1 málssóknarskjalinu er þess beiðst,
a) að dómurinn lýsi því, hvaða meginreglum alþjóða-
réttar skuli beitt, er kveðið er á um grunnlínur þær,
sem noi'sku ríkisstjórninni er heimilt að draga við
afmörkun fiskiveiðasvæðis, er nær 4 sjómílur til hafs
frá þeim línum og áskilið er norskum ríkisborgurum
einum, svo og að dómurinn kveði á um nefndar grunn-
línur, að svo miklu leyti sem það, með hliðsjón af
málflutningi aðilja, telst nauðsynlegt, til þess að af-
stýra frekari lagadeilum milli þeirra,
b) að dómurinn kveði á um bætur handa Hinu samein-
aða konungsríki vegna hverskonar afskipta norskra
yfirvalda af brezkum skipum utan þess svæðis, þar
sem ríkisstjórn Noregs samkvæmt ákvörðun dóms-