Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Side 15
Haagdómurinn í fiskveiöamáli Bretlands og Norcgs
9
ins, þeirri er í staflið a getur, er heimilt að áskilja
norskum þegnum einum.
Málssóknin var samkvæmt 40. gr., 3. málsgrein, stofn-
skrárinnar tilkynnt ríkjum þeim, sem rétt eiga til að bera
mál undir dóminn. Hún var einnig send aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna. Málsskjöl voru lögð fram innan þeirra
tímamarka, sem ákveðin eru með reglum frá 9. nóvember
1949 og framlengd voru með reglum frá 29. marz og 4.
október 1950 og 10. janúar 1951. Samkvæmt 44. grein, 2.
málsgr., dómreglnanna voru samrit af málsskjölunum
send ríkisstjórnum Belgíu, Canada, Cuba, Islands, Sví-
þjóðar, Bandaríkja Norður-Ameríku og Venezuela, að
beiðni þessara ríkisstjórna og með samþykki dómsins.
Hinn 24. september 1951 ákvað dómurinn samkvæmt 44.
gr., 3. málsgr., dómreglnanna að beiðni ríkisstjórnar Nor-
egs og með samþykki ríkisstjórnar Hins sameinaða kon-
ungsríkis, að almenningi veittist kostur á því að kynna sér
málsskjölin.
Málið var tilbúið til munnlegs flutnings hinn 30. apríl
1951, og ákveðið var, að munnlegur málflutningur skyldi
hefjast hinn‘25. september s. á.
Opinber málflutningur fór fram 25., 26., 27., 28., 29.
september og 1., 5., 6., 8., 9., 10., 11., 12., 13., 15., 17., 18., 19.,
20., 24., 25., 26., 27. og 29. október. Af hendi ríkisstjórnar
Hins sameinaða konungsríkis fluttu málið munnlega þeir
Sir Eric Beckett sem fyrirsvarsmaður, Sir Frank Soskice,
hr. Wilberfo rce og prófessor V7aldock sem ráðunautar, en
af hendi ríkisstjórnar Noregs hr. Arntzen sem fyrirsvars-
maður og málflytjandi og prófessor Bourquin sem mál-
flytjandi. Auk þeirra gaf Kennedy flotaforingi tæknilegar
skýringar af hendi Hins sameinaða konungsríkis. 1 lok
sóknarræðu sinnar bar fyrirsvarsmaður Hins sameinaða
konungsríkis fram eftirfarandi kröfur:
,,Hið sameinaoa konungsríki krefst þess, að dómurinn
kveði á um það, að landhelgismörk þau, sem Noregi er rétt
að halda uppi gagnvart Hinu sameinaða konungsríki, skuli
ákveðin samkvæmt eftirfarandi meginreglum: