Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Blaðsíða 31
Htutf/dóniurinn i fiskvcifiuviáli Drctlanda o(j Norcf/s
25
dregnar eru þvert yfir s.iávarsvæði, cr liggja milli hinna
ýmsu eymyndana í skerjagarðinum. Ríkisstjórn Hins sam-
einaða konungsríkis beitir fyrir sig lögjöfnun frá hinni
ætluðu almennu tíu mílna reglu um firði og fullyrðir enn,
að lengd hinna beinu lína megi ekki fara fram úr tíu
mílum.
Framkvæmd ríkja í þessu efni réttlætir ekki orðun
neinnar almennrar lagareglu. Tilraunir, sem gerðar hafa
verið til að láta eyjaklasa og eyjahöf með ströndum fram
sæta svipaðri meðferö og höfð er um takmarkanir varðandi
firði (fjarlægð milli eyja fari ekki fram úr tvöfaldri breidd
landhelginnar, eða tíu eða tólf sjómílum), hafa ekki komizt
iengra en á tillögustigið.
Þegar því hins vegar er alveg sleppt, hvort takmarka
eigi Hnurnar við tíu mílur, má hugsa sér ýmis konar línur.
1 slíkum tilvikum virðist strandríldð hafa bezta aðstöðu til
að meta staðarlegar aðstæður, sem valið cr reist á.
Dómurinn getur ekki fallizt á þá skoðun ríkisstjórnar
Hins sameinaða konungsiúkis, að „Noregur krefjist nú, að
því er varðar grunnlínur, viðurkenningar á afbrigðilegu
kerfi". Sér Jómurinn, svo sem síðar mun sýnt verða, ekki
annað en að hér hafi verið beitt almennum alþjóðalögum
í sérstöku tilviki.
Niðurstöður Hins sameinaða konungsríkis í liðunum 5
og 9 til 11 varða sjávarsvæði, sem eru milli grunnlínanna
og norska meginlandsins. Þess er þar farið á leit, að dómur-
inn kveði svo á, að þessi sjávarsvæði teljist norsk á sögu-
iegum grundvelli, en að greint sé á milli tvennskonar svæða,
landhelgi og innsævis og vatna, í samræmi við tvö sjónar-
mið, sem í niðurstöðum þessurn eru talin hafa góða stoð í
alþjóðalögum. Sjávarsvæði, sem koma undir hugtakið fjörð,
skuli talin innsævi, sjávarsvæði, sem eru í eðli sínu sund í
lagaskilningi, skuli talin landhelgi.
Svo sem Hið sameinaða konungsríki hefur viðurkennt,
myndar skerjagarðurinn eina heild með norska megin-
landinu. Sjávarsvæðin milli grunnlína landhelginnar og
meginlandsins eru innsævi. Nokkur hluti þessara sjávar-