Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Qupperneq 44
38
Tímarit lögfræSinga
Ríkisstjórn Hins sameinaða konungsríkis hefur einkum
beint gagnrýni sinni að tveimur svæðum, þar sem hún
telur, að við afmörkun landhelginnar sé sérstaklega vikið
frá heildarstefnu strandarinnar, þ. e. á svæðinu Svær-
holthavet (milli grunnlínustaðanna 11 og 12) og á svæð-
inu Lopphavet (milli grunnlínustaðanna 20 og 21). Dóm-
urinn mun taka til meðferðar frá þessu sjónarmiði af-
mörkun landhelginnar á þessum tveimur svæðum.
Grunnlínan milli staðanna 11 og 12, sem er 38,6 sjómíl-
ur að lengd, afmarkar Sværholt-svæðið, sern er á milli
Nordkyn-höfða og Norðurhöfða. Ríkisstjórn Hins sam-
einaða konungsríkis neitar því, að hið þannig afmarkaða
sjávarsvæði hafi einkenni fjarðar. Röksemdafærsla þess
er reist á landfræðilegri athugun. Samkvæmt skoðun þess
slcal ekki telja flóann ganga lengra inn í landið en að odd-
anum á Sværholts-nesinu (Sværholtsklubben). Þar sem
lengdin, sem þá fæst, er einungis 11,5 sjómílur, en breidd-
in við mynnið 38,6 sjómílur, sé nefndur flói ekki í eðli
sínu fjörður. Dómurinn getur ekki fallizt á þessa skoðun.
Hann telur, að líta beri á flóa þann, sem um er að tefla,
í ljósi allra þeirra landfræðilegu atriða, sem til greina
koma. Sú staðreynd, að tangi skagar þar fram og myndar
tvo víða firði, Laksefjord og Porsangerfjord, getur ekki
svipt flóann einkennum fjarðar. Það eru fjarlægðirnar
milli hinnar umdeildu grunnlínu og innstu staða í botnum
þessara fjarða, 50 sjómílur í öðrum og 75 í hinum, sem
taka verður tillit til, er meta skal hlutfallið milli lengdar
inn í landið og breiddar við mynni. Niðurstaða dómsins
er, að Sværholthavet hafi einkenni fjarðar.
Afmörkun landhelginnar í Lopphavet hefur einnig verið
gagnrýnd af Hinu sameinaða konungsríki. Svo sem tekiö
hefur verið fram áður, má líta svo á, að það hafi horfið
frá gagnrýni sinni á grunnlínustaðnum nr. 21. Lopphavet
er óregluleg heild frá landfræðilegu sjónarmiði. Ekki verð-
ur litið svo á, að það hafi einkenni fjarðar. Það er víð-
áttumikið sjávarsvæði, kröggt af stórum eyjum, og eru
sund á milli þeirra, sem hinir ýmsu firðir eru framhald af.