Tímarit lögfræðinga - 01.03.1952, Qupperneq 52
46
Tímarit lögfræíinga
49. Kolbeinsey............. 67°07'5 n.bi\, 18°36'0 v.lg.
50. Hvalsbakur............. 64°35'8 — 16°16'7 —
51. Geirfugladrangur ...... 63°40'6 — 23°17'3 —
Loks skal dregin markalína í kringum Grímsey, 4 sjó-
mílur frá yztu annesjum og skerjum hennar.
2. gr.
Á svæði því, sem um ræðir í 1. gr., skulu útlendingum
einnig bannaðar hvers konar aðrar veiðar, samkvæmt á-
kvæðum laga nr. 33 19. júní 1922, um rétt til fiskiveiða í
landhelgi.
3. gr.
Aflaskýrslur skulu sendar Fiskifélagi Islands á þann
hátt, sem fyrir er mælt í lögum nr. 55 frá 27. júní 1941,
um afla- og útgerðarskýrslur.
Nú telur atvinnumálaráðuneytið, að um ofveiði verði að
ræða, og getur það þá takmarkað fjölda veiðiskipa og há-
marksafla hvers einstaks skips.
4. gr.
Dtgerðarmenn þeir, sem hafa í hyggju að stunda sumar-
síldveiðar fyrir Norðurlandi á tímabilinu frá 1. júní til 1.
október, skulu sækja um leyfi til atvinnumálaráðuneytis-
ins fyrir 15. maí ár hvert og tilgreina í umsókn sinni, hvaða
skip þeir ætli að nota til veiðanna og hvers konar veiðar-
færi verði notuð.
5. gr.
Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum
samkvæmt ákvæðum laga nr. 5 8. maí 1920, um bann gegn
botnvörpuveiðum, laga nr. 45 13. júní 1937, um bann gegn
dragnótaveiði í landhelgi, laga nr. 33 19. júní 1922, um rétt
til fiskiveiða í landhelgi, með síðari breytingum eða, ef um
er að ræða brot, sem ekki fellur undir framangreind lög,
sektum frá kr. 1000.00 til kr. 100 000.00.