Tímarit lögfræðinga - 01.01.1969, Qupperneq 85
~svaiivaröur (^invarciiion:
FRÁ SAKFRÆÐINGAFÉLAGI
ÍSLANDS
Hinn 4. nóvember s.l. var ársþing Sakfræðingafélags Is-
lands haldið að Tjarnarbúð í Reykjavík. Þingið var sett
af ritara félagsins, Baldri Möller, ráðuneytisstjóra, í fjar-
veru formanns, Yaldimars Stefánssonar, saksóknara ríkis-
ins, sem var þá erlendis. Til fundarstjórnar var kvaddur
gjaldkeri félagsins, Logi Einarsson, hæstaréttardómari, en
hann gaf og skýrslu um fjárhag félagsins, og voru endur-
skoðaðir reikningar þess samþykktir. Sú lagabreyting var
gerð á fundinum, að ákvæðum 4. gr. samþykkta félagsins
um skipan stjórnar var breytt á þá lund, að í henni skjddu
framvegis vera 3 menn í stað 7 áður. Var síðan gengið til
stjórnarkjörs, og hlutu kosningu þeir Ásgeir Thoroddsen,
fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu, Hallvarður Einvarðsson,
aðalfulltrúi saksóknara ríkisins, og Jónatan Þórmundsson,
fulltrúi saksóknara ríkisins. Á fyrsta stjórnarfundi hinnar
nýkjörnu stjórnar skipti stjórnin með sér verkum í sam-
ræmi við 4. gr. félagssamþykkta, og er Iiallvarður for-
maður, Jónatan ritari, en Ásgeir gjaldkeri. Að loknum þess-
um aðalfundarstörfum þingsins flutti Jónatan Þórmunds-
son stórfróðlegt og greinargott erindi um opinbera máls-
meðferð og fréttaflutning, og hlaut erindi hans hinar beztu
undirtektir.
Sakfræðingafélag Islands var stofnað 17. nóvember 1949,
eftir að undirhúin hafði verið stofnun þess á sérstökum
fundi hinn 31. maí sama ár. Verða því brátt liðnir fullir
2 áratugir frá stofnun félagsins. Mun það einkum hafa
verið fyrir forgöngu dr. Ivarls Schlyter, fyrrum dómsmála-
Tímarit lögfræðinga
79