Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Blaðsíða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Blaðsíða 25
Það er t. d. ljóst, að sala eða önnur ráðstöfun fjármuna andstæð samn- ingi um afborgunarkaup getur ekki fyrirvaralaust talizt auðgunarbrot. Þar verður að meta horfurnar á fjártjóni. Annað kann að eiga við um heimildarlausa notkun á peningum annars manns, einkum þeim, er halda á aðgreindum frá eigin fé (depositum regulare), sbr. 2. mgr. 247. gr. Andenæs vill greina glöggt á milli depositum regulare og irregulare, sbr. Formuesforbrytelsene, bls. 50. Nokkur greinarmunur virðist gerður í íslenzkum rétti að þessu leyti, sbr. greinargerð með 247. gr. Greinargerðin bendir reyndar til þess, að miðað sé við fremur formlegan mælikvarða einnig, þegar óskylt er að halda fé aðgreindu frá eigin fé (depositum irregulare). Þar stendur m. a.: „Hann er skyld- ur að haga eyðslu sinni á þá lund, að hann sé ávallt fær um að greiða eigandanum peningana. Og sé fjárhag hans þannig háttað, að hann eigi ekki fyrir skuldum og megi óttast það, að lánardrottnar gangi að fjármunum hans, mundi honum að jafnaði vera skylt að halda pen- ingum annars manns, er hann hefur í vörzlum sínum, aðgreindum frá sínu fé.“ Waaben leggur í riti sínu meiri áherzlu á hinn efnislega mæli- kvarða. Þá er miðað við ástandið, eins og ætla má, að það verði á til- teknu tímamarki (gjalddaga). Sé enginn fastur gjalddagi og viðsemj- andi getur krafizt greiðslu hvenær sem er, hlýtur hinn formlegi mæli- kvarði aftur að mega sín meira. Þegar byggt er á hinum efnislega mælikvarða, þarf að afmarka nánar ásetningsstigið með tilliti til hins f járhagslega útlits. Ekki verð- ur þess krafizt, að sakborningi hafi verið ljóst, að hann hefði enga möguleika á að greiða (vissa). Dolus eventualis með tilliti til afleið- inga verður sennilega talinn nægja, sbr. dæmi, er Waaben nefnir á bls. 286—287. Á hinn bóginn er óheppilegt á þessu sviði að treysta á dolus eventualis, en venjulegur líkindaásetningur tæplega fullnægjandi. í þess stað er miklu raunhæfara og viðráðanlegra að nálgast vandamálið á svipaðan hátt og þegar fjallað er um hættuásetning. Annað hvort er manni kunnugt um hugsanlega hættu á fjártjóni eða ekki. Hættu- ásetning má skoða sem sérstakt ásetningsform, þar sem áherzla er lögð á vitundina um hættu. Hættuásetningur felur þá í sér tvennt: a) ásetning með tilliti til verknaðar og þeirra aðstæðna við verknaðinn, sem eru grundvöllur hins hlutræna mats á hættunni og b) hugsun eða hugmynd um tjón sem mögulega afleiðingu af hættuástandi, en hugmyndin um tjónið þarf þó ekki að vera skýr. Slakað er á hinum venjulegu ásetningskröfum að því er varðar tilteknar afleiðingar í framtíðinni, og er fremur farið eftir þeim mælikvarða, er gildir um vísvitandi gáleysi. Skal nú vikið að gildi þessara sjónarmiða fyrir þá 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.