Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Blaðsíða 41
muni þá deyja drottni sínum. Þegar betur er að gáð, er hér um vanda-
mál að ræða, sem ekki á sér neina stoð í raunveruleikanum. Strand-
ríkið getur jafnan veitt öðrum þjóðum aðgang að fiskimiðunum með
því að stofna til sérstakra fiskveiðileyfa á sama hátt sem margar
þjóðir hafa selt erlendum félögum á leigu skákir landgrunns þeirra
til olíu- og gasvinnslu. Það er einmitt í þessu, sem meginhagur lög-
sögu strandríkisins liggur, þ. e. a. s. að hér getur strandríkið tekið
frá þann hluta aflamagnsins, sem nauðsynlegur er fyrir þess eigin
þegna, en heimilað nýjum ríkjum hlutdeild í því aflamagni, sem eftir
verður, eða ríkjum, sem tíðkað hafa fiskveiðar undan ströndum þess.
Þannig fær strandríkið tryggt efnahag sinn til frambúðar, án þess
að útilokuð sé hlutdeild annarra ríkja í fiskveiðunum.
3. Framkvæmd fiskveiðireglna
Þó að samkomulag náist um ráðstafanir á grundvelli kerfis þeirra
alþjóða fiskveiðisamninga, sem nú eru í gildi, verður ekki fram hjá
því atriði gengið, sem lýtur að framkvæmd fiskveiðireglnanna. Yfir-
leitt hvílir eftirlit með því að fiskveiðireglum sé framfylgt á úthafinu
á hverju aðildarríki gagnvart þegnum þess. Eftirlitsmönnum frá öðr-
um aðildarríkjum er ekki heimilt að ganga úr skugga um, hvort t. d.
farið hefur verið í öllu að fyrirmælum um fiskverndarráðstafanir eða
ekki.13)
Nýlega hefur orðið hér nokkur breyting á og samkomulag náðst um
sameiginlegt eftirlit innan Norðaustur- og Norðvestur-Atlantshafs
fiskveiðinefndanna. Er eftirlitsmönnum heimilt að fara um borð í
fiskiskip samningsaðila af öðru þjóðerni, en enriþá er það svo, að það
ríki, sem skipið er skráð í, hefur eitt heimild til þess að gefa út stefnu
og refsa fyrir brot á reglunum.
Um þessa meinbugi er ekki að ræða, þegar lögsaga strandríkisins
hefur hlotið viðurkenningu. Þá mun strandríkið ekki einungis hafa
óskoraða heimild til þess að framfylgja hlutaðeigandi reglum gagn-
vart erlendum fiskiskipum jafnt sem eigin, heldur einnig hafa heim-
ild til þess að lögsækja alla þá, sem brotlegir gerast, fyrir dómstólum
strandríkisins. Mun það hafa í för með sér, að unnt verður að fram-
fylgja bæði stjórnunar- og fiskiverndarreglum betur en nú er.
4. Varnir gegn mengun hafsins
Mengun hafsins er alþjóðlegt vandamál og af þeim sökum hljóta
ráðstafanir til úrbóta að byggjast á alþjóðlegri samvinnu. Verkefnið
er víðfeðmt og langtíma lausn þess ekki enn í sjónmáli. Vel var þó af
35