Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Blaðsíða 21
Skírlífis- og sifskaparbrot 8
Ofbeldisbrot 77
Fjárréttindabrot 599
önnur hegningarlagabrot 10
Fjárréttindabrotin, sem eru rúm 86% allra brotanna, skiptast
þannig:
Peningafals, skjalafals o. þ. h. 99
Þjófnaður og gripdeild 211
Fjárdráttur 21
Fjársvik 78
Nytjastuldur farartækja 62
Tékkamisnotkun 101
Annað 27
Skv. þessu hafa a. m. k. 310 dómar gengið vegna auðgunarbrota.
Þar við bætast einhverjir af þeim 27, sem flokkaðir eru undir Annað.
Tékkasvik ættu öll að vera undir liðnum fjársvik. Tékkamisnotkun
felur í sér brot gegn 261. gr., ef rétt er flokkað. Fjöldi þeirra mála
(101) og ensk skýring (cheque fraud) benda þó til, að í þessari tölu
séu tékkasvik einnig talin. Af þessu sést, að auðgunarbrot eru um
helmingur eða meira allra dæmdra hegningarlagabrota.
Á árunum 1966—68 var gerð formleg sátt í 10914 málum, þar af 635
vegna brota á hegningarlögum (609 sektargerðir + 26 áminningar),
sbr. Dómsmálaskýrslur, töflu 1. Að því er hegningarlögin varðar, er
slík afgreiðsla langalgengust á þessum brotum: tékkamisnotkun (298),
líkamsmeiðing af gáleysi, ekki í sambandi við bifreiðaslys (98), fjár-
svik (78), peningafals, skjalafals (55), líkamsárás (36). Að fjársvik-
um og tékkamisnotkun slepptum eru hér lágar tölur um fjárréttinda-
brotin: þjófnaður og gripdeild (2), ólögmæt meðferð fundins fjár (3),
fjárkúgun, rán (1).
Af tölum hér að framan má sjá, að sum auðgunarbrot eru mjög tíð,
en önnur ákaflega sjaldgæf (skilasvik, umboðssvik, ólögmæt meðferð
fundins fjár, misneyting, fjárkúgun). Varla verður því tíðni auðg-
unarbrota beitt sem röksemd með núverandi flokkun. Verður þó að
hafa í huga, að sum hinna fátíðari brota er auðvelt að dylja.
D) Hvað er auðgunartilgangur?
1. Þótt spurningin sé svo orðuð, er hugtakið auðgunartilgangur
hvergi beinlínis notað í lögum, nema í 261. gr. alm. hgl. 1 243. gr. alm.
15