Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Blaðsíða 54
eigi sæti fulltrúar tilnefndir af dómsmála-
ráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu og Dómara-
félagi Reykjavíkur.
5. gr.
1. mgr. Við gerð samnings þessa er samn-
ingsaðilum Ijós ríkjandi stefna af ríkisins
hálfu I þvi efni að leggja rikisstarfsmönnum
á föstum vinnustað til mat og kaffi á venju-
bundnum tímum gegn greiðslu matarefna-
kostnaðar. Telja samningsaðilar þá stefnu
fullnægjandi skipan þessara mála á samn-
ingstlmanum, enda verði þess freistað að
gera hlut starfsmanna einstakra stofnana sem
jafnastan ( þessu efni eftir aðstæðum á
hverjum stað.
2. mgr. Starfsmenn hafi ókeypis fæði eða
greiddan fæðiskostnað skv. 17. gr. kjara-
dóms, starfi þeir fjarri föstum starfsstað.
6. gr.
1. mgr. Við gerð þessa samnings er samn-
ingsaðilum Ijós gagnkvæm þörf ríkisins og
starfsmanna þess fyrir, að þeir starfsmenn,
sem vegna starfs síns hafa sérstaka þörf á
viðhalds- og endurmenntun eigi kost á þátt-
töku á námskeiðum og annars konar mennt-
un til að viðhalda og auka við starfshæfni
sina og auka starfsmönnum viðsýni og per-
sónulega lifsfyllingu.
2. mgr. Samningsaðilar munu á samnings-
tímanum freista þess, að móta ákveðna
stefnu i þessu efni og framkvæma f samráði
sfn á milli og á grundvelli þeirra reglna, sem
dómsmálaráðuneytið og fjármálaráðuneytið
hafa þegar mótað.
3. mgr. Viðkomandi ráðuneyti og fjármála-
ráðuneytið ákveða greiðslu ferðakostnaðar
starfsmanna sem leyfi fá til námsdvalar, sbr.
1. mgr. og 2. mgr. f samræmi við 18. gr. 1.
mgr. 2 f dómsorði kjaradóms frá 15/2 1974.
7. gr.
1. mgr. Starfsmenn skulu slysatryggðir sem
hér segir, miðað við dauða:
.I Einhleypir starfsmenn, sem ekki hafa
börn undir 17 ára aldri eða aldraða for-
eldra yfir 67 ára aldri á framfæri sfnu
fyrir kr. 200.000,00.
II. Einhleypir starfsmenn, sem hafa barn/
börn undir 17 ára aldri eða aldraða for-
eldra yfir 67 ára aldri á framfæri sínu,
fyrir kr. 500.000,00, sem skiptist að jöfnu
milli aðila.
III. Kvæntir eða giftir starfsmenn fyrir kr.
700.000,00 til maka og að auki kr.
100.000,00 til hvers barns undir 17 ára
aldri, sem þeir hafa á framfæri sfnu.
2. mgr. Vegna örorku skulu starfsmenn
slysatryggðir fyrir kr. 1.250.000,00 miðað við
100% örorku þannig, að hvert örorkustig til
og með 75% veitir bætur kr. 10.000,00 fyrir
hvert stig, en hvert stig þar yfir veitir bætur
kr. 20.000,00 fyrir hvert stig.
8. gr.
1. mgr. Starfsmaður, sem er aðili að
samningi þessum, hefur starfað i þjónustu
ríkisins i 5 ár og er síðan skipaður til starfs,
sem gerir kröfu til að hann flytji milli lög-
sagnarumdæma, á rétt á greiðslu fargjalda
sinna og fjölskyldu sinnar og hæfilegs flutn-
ingskostnaðar búslóðar úr rikissjóði.
Réttur til sllkrar greiðslu vaknar að nýju
5 árum eftir að síðast var flutt.
2. mgr. Starfsaldursskilyrði 1. mgr. tekur
þó eigi til dómarafulltrúa, enda sé flutt eigi
skemmri vegalengd en 100 km.
9. gr.
Aðilar eru sammála um, að nefnd skv. 12.
mgr. 17. gr. f dómsorði Kjaradóms frá 15.02.
74 skuli fjalla um greiðslu bifreiðakostnaðar
þeirra félagsmanna, sem inna vinnu sfna
af hendi á mismunandi stöðum dag hvern.
Um gildistfma og uppsögn þessa samnings
fer skv. ákvæðum laga nr. 45/1973. Öllu of-
anrituðu til staðfestu rita aðilar nöfn sfn hér
undir.
Reykjavlk, 13. júnf 1974.
[ framhaldi af viðræðum þeim, sem áttu sér stað milli kjaramálanefndar Lögfræðingafélags
íslands og samninganefndar rikisins í launamálum við gerð sérkjarasamnings fjármálaráðherra
og Lögfræðingafélags íslands þann 13. júnf s.l., vill samninganefnd ríkisins taka fram eftirfarandi:
A. Samninganefndin mun koma þvf á framfæri við dómsmálaráðuneytið að það taki það til at-
hugunar, að þar sem henta þykir verði komið á nýjum stöðum aðalfulltrúa eða löglærðra
skrifstofustjóra og að leitað verði nauðsynlegra heimilda til upptöku nýrrar starfsskipunar
f þvf efni.
B. Samninganefndin er þvf hlynnt að sérstök athugun fari fram á skipun deildarstjórastarfa I
Stjórnarráðinu.
C. Samninganefndin mun stuðla að því að heimild 3. gr. samningsins verði notuð þar sem
veruleg þörf er á.
D. Samninganefndin mun fyrir sitt leyti stuðla að því, að störf nefndar skv. 4. gr. samningsins
geti hafist sem allra fyrst.
48