Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Page 28
Þess má geta, að í fjárlagaræðu fjármálaráðherra á Alþingi í októ-
ber 1973 var vikið að skattsvikum. Þar segir m. a.: „Mitt mat er það,
að til þess að komið sé í veg fyrir skattsvik, svo að marki sé, þá verði
að gera skattsvik að viðurlögum eins og um fjársvik væri að ræða.
Það verði að líta á þau eins og litið er á fjármuni, sem teknir eru
ófrjálsri hendi. Ef slík refsiákvæði væru sett inn í skattalögin, þá
mundi margt breytast í landi okkar.“ Hér virðist gert ráð fyrir, að
refsiákvæðin haldi óbreyttri stöðu sinni innan skattalaganna, en viður-
lög við brotum verði þyngd til jafns við það, sem tíðkast um auðgunar-
brot, t. d. fjársvik (fangelsi allt að 6 árum). Verður komið að þessu
aftur síðar.
3. Samkvæmt gildandi lögum verða skattalagabrot sem slík ekki
heimfærð til 248. gr. né annarra ákvæða í XXVI. kafla alm. hgl.
Skiptir ekki máli, þótt í refsiákvæðum skattalaganna sé sá fyrirvari
um refsihámark, að „ekki liggi þyngri refsing við brotum samkvæmt
hinum almennu hegingarlögum“, sbr. 5. mgr. 48. gr. 1. nr. 68/1971.
Refsiákvæði skattalaga gilda um afmarkað og sérhæft svið stjórnsýsl-
unnar og eru þannig sérákvæði gagnvart hinum almennari ákvæðum
hegningarlaga. Þegar af þessum ástæðum tæma ákvæði skattalaga sök,
án tillits til þess, hvort brotin geti efnislega varðað við ákvæði alm.
hgl. um auðgunarbrot. 1 Hrd. XLI bls. 834 (878) segir svo um þetta
álitaefni í forsendum sakadóms Reykjavíkur, er staðfestar voru af
Hæstarétti: „Fyrir að tilgi'eina ranglega vörusölu sína á söluskatts-
skýrslum hefur verið krafizt refsiábyrgðar samkvæmt 247. gr. alm.
hgl„ 26. gr. laga um söluskatt, 31. gr. reglugerðar nr. 15/1960 og
145. gr. eða til vara 146. eða 147. gr. alm. hgl. . . . Líta verður svo á,
að með 25.—26. gr. laga nr. 10/1960 hafi verið sett refsiákvæði, sem
ætlazt hafi verið til, að tæma skyldu sök að þessu leyti. Þrátt fyrir
orðalagið, „nema þyngri refsing liggi við skv. öðrum lögum“, verður
ekki talið, að ætlun löggjafans hafi verið, að 247 gr. alm. hgl. yrði
beitt um umrætt atferli. Refsiákvæði söluskattslaganna hefðu verið
öldungis marklaus, ef svo hefði verið.“
4. Þeirri hugmynd er oft hreyft, að það sé árangursríkara í barátt-
unni gegn skattsvikum að setja refsiákvæði þeim til höfuðs í sjálf
hegningarlögin. Þetta má gera með mismunandi hætti. Danir hafa
valið þá leið að lögfesta sérstakt ákvæði í auðgunarbrotakafla hegn-
ingarlaganna (289. gr.). Það er dæmigert eyðuákvæði, sem um verkn-
aðarlýsingu vísar til ákveðinna skattalagareglna varðandi tekju- og
eignarskatt (skattekontrolloven). En það geymir þyngri refsifyrirmæli
en skattalögin (fangelsi allt að 4 árum gagnstætt sektum, varðhaldi og
22