Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Page 29

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1974, Page 29
fangelsi allt að 2 árum) og kemur því aðeins til álita, að um stórfelld skattsvik sé að ræða. Það er hlutverk ákæruvalds og dómstóla að meta, hvenær brotið teljist stórfellt, t. d. endurteknar rangfærslur eða háar fjárhæðir dregnar undan skatti. Þessi aðferð er að því leyti heppilegri en lögfesting sjálfstæðs efnisákvæðis í hegningarlögum, að skattalög eru háðari breytingum, m. a. eftir breytilegu pólitísku mati, en obbinn af hinum hefðbundnu ákvæðum hegningarlaga. Þá kemur líka sá vandi, hvort freista eigi þess að setja sameiginleg refsiákvæði fyrir öll skatta- brot eða flytja refsiákvæði hinna einstöku skattalaga í hegningarlögin t. d. söluskattslaga og tollalaga. Sennilega er vafasamt að flytja eitt þessara refsiákvæða, t. d. 48. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt, en láta hin standa á sínum fyrri stöðum. I norsku hegningarlögunum fyrirfinnst almennt refsiákvæði (406. gr.) varðandi skattalagabrot, en því er lítið beitt í framkvæmd. Á hinn bóginn er almennt efnisákvæði í 88. kafla finnsku hegningarlaganna frá 1889, sem hefur miklu raun- hæfara gildi. 1 38. kafla laganna eru ákvæði um ýmis auðgunarbrot og önnur fjármunabrot, þó ekki fjársvik. Með 1. nr. 498/1972 voru refsi- viðurlög þyngd við skattsvikum (skattebedrágeri). Ef skattsvik þættu að efni til geta varðað við 248. gr. alm. hgl. um fjársvik, mætti e. t. v. ákveða í lögum, að skattsvik skyldu heimfærð til þessa ákvæðis. Minnir slíkt lagaboð á aðferðina, sem höfð var í dönsku hegningarlögunum, er útilokuð var frá fjárdráttarákvæðinu óheimil ráðstöfun yfir hlutum með eignarréttarfyrirvara, þótt í aðra átt gengi. Það er nokkurt íhug- unarefni, hvort skattsvik fullnægi efnisskilyrðum 248. gr. alm. hgl. Jafnframt má leiða hugann að því, hvað mæli sérstaklega gegn því að tengja skattsvik við auðgunarbrotaákvæðin, á hvaða hátt sem það er gert. 5. Samanburður á f jársvikum og skattsvikum. a) Fjársvik eru tvíhliða brot, þar sem atbeina tjónþola þarf til á þann hátt, að hinn brotlegi kemur honum til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert með nánar tilteknum blekkingum. Verknaðarlýsing 248. gr. hentar ekki skattsvikum vel að þessu leyti. Þessi lýsing á helzt við um álagningarathöfn skattstjóra, sem að vísu á sér stað, eftir að skatt- svikin eru fullframin. Sé vanrækt að telja fram til skatts, sbr. 1. mgr. 48. gr. 1. nr. 68/1971, er fráleitt að tala um nokkurt tvíhliða samband. Skortur á upplýsingum getur leitt til þess, að skattayfirvöld áætli skatt of lágan, og vanrækslan teljist því brot gegn 1. mgr. 48. gr. 1. nr. 68/1971. En verknaðarlýsing 248. gr. á ekki við um slíka vanrækslu. b) Af því er að framan segir, leiðir einnig, að skattsvik hafa oft á sér einkenni tækifærisbrota. Skattþegn er að vísu skyldur að lögum til 23

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.