Tímarit lögfræðinga - 01.05.1985, Blaðsíða 31
félagsaðildinni sé lokið eða vitneskja komist um það til skuldheimtu-
mannsins. Grandlaus skuldheimtumaður gæti því gengið að þessum
óskráða félagsmanni eftir að hann hefur gengið úr félaginu.
Varðandi ábyrgð félagsmanns sem stofnað er til áður en hann geng-
ur úr félaginu er rétt að fara nokkrum orðum um dóm Hæstaréttar
frá 25. mars 1982 í málinu
Dánarbú Gísla Marinóssonar,
Eysteinn Þorvaldsson o.fl.
gegn
Nönnu Ágústsdóttur.
Málsatvik verða einungis rakin að því leyti sem þau snerta ábyrgð
fyrri eigenda sameignarféiags á skuldbindingum sem stofnað var til
í eignartíð fyrri eigenda.
Gísli Marinósson og Eysteinn Þorvaldsson stofnuðu tveir sameignar-
félagið Kaupfell. Fyrirtækið tók á leigu húsnæði hjá eiginmanni
Nönnu Ágústsdóttur en hann lést áður en málið var höfðað í héraði.
Leigutíminn var frá 1. mars 1976 til 28. febrúar 1979. Fyrri hluta árs
1977 seldu þeir fyrirtækið Ingibjörgu Magnúsdóttur og síðar gerð-
ist Ragnar Kristinsson meðeigandi hennar og var fyrirtækið skráð
sameignarfélag þeirra með sama nafni. Leigutíminn var því u.þ.b.
hálfnaður þegar eigendaskipti urðu. Vanskil urðu á leigúgreiðslum
frá áramótum 1976/1977, þ.e.a.s. bæði í tíð fyrri og síðari eigenda og
var málið höfðað til greiðslu vangoldinnar leigu in solidum gegn sam-
eignarfélaginu og fyrri og síðari eigendum, en þá var Gísli Marinós-
son látinn og málið því höfðað gegn dánarbúi hans. Eysteinn Þorvalds-
son og Gísli Marinósson héldu því m.a. fram að þar sem Ingibjörg
Magnúsdóttir hefði keypt fyrirtækið Kaupfell s.f. og tekið að sér allar
skuldbindingar þess væru þær þeim óviðkomandi. Um þessa máls-
ástæðu segir svo í héraðsdómi sem staðfestur var í Hæstarétti:
„Húsaleigusamningurinn er undirritaður 28. febrúar 1975, og er
leigutíminn frá 1. mars 1976 til 28. febrúar 1979. Gísli Marinós-
son og Eysteinn Þorvaldsson eru eigendur Kaupfells s.f. þegar
húsaleigusamningurinn er gerður og báru þannig persónulega
ábyrgð á efndum hans. Þótt þeir hafi selt stefndu Ingibjörgu
Kaupfell s.f. með öllum skuldbindingum þess, þykir það í engu
breyta réttarstöðunni á milli þessara stefndu aðilja og stefnanda,
en ekki hefur komið fram í málinu, að stefnandi hafi leyst þessa
fyrri eigendur Kaupfells s.f. undan persónulegri ábyrgð þeirra á
efndum húsaleigusamningsins. Ekki þykir skipta máli, þótt gjald-
felling húsaleiguskuldarinnar hafi ekki farið fram fyrr en eftir
25