Tímarit lögfræðinga - 01.05.1985, Page 47
yrðum 3. tl. 1. mgr. 2. gr. laganna, skyldu eigi síðar en með skattfram-
tali sínu árið 1980 senda skattstjóra þar tilgreind gögn um að skil-
yrðum hefði verið fullnægt, æsktu þau þess að teljast áfram sjálfstæð-
ir skattaðilar. Hér var eldri félögum því gefinn kostur á að uppfylla
hert skilyrði nýju laganna fyrir sjálfstæðri skattskyldu og þeim veitt-
ur tiltekinn frestur til þess. Þessi heimild var bundin við þau sam-
eignarfélög, sem verið höfðu sjálfstæðir skattaðilar fyrir gildistöku
laganna. Eldri sameignarfélög, sem ekki voru sjálfstæðir skattaðilar
fyrir gildistöku laganna, áttu ekki kost á því að öðlast sjálfstæða
skattskyldu samkvæmt hinum nýju lögum, eftir því sem orðalagið ber
með sér. Er hér um að ræða sömu afstöðu og í áður gildandi lögum við
gildistöku þeirra.
Það verður því að álíta, að staða eldri sameignarfélaga ákvarðist al-
veg af þessu bráðabirgðaákvæði, sem hér hefur verið rakið. Þau sam-
eignarfélög, sem báru ekki sjálfstæða skattskyldu fyrir gildistöku 1. nr.
40/1978, áttu þess því ekki kost að breyta um skattalega stöðu, jafn-
vel þótt skilyrðum hinna nýju laga væri fullnægt. Sameignarfélög, sem
voru sjálfstæðir skattaðilar samkvæmt eldri lögum og uppfylltu þegar
hin hertu skilyrði nýju laganna, urðu áfram sjálfstæðir skattaðilar,
en þau sameignarfélög, þar sem á skorti um þetta, fengu frest til þess
að koma málum sínum í rétt horf að þessu leyti. Um sameignarfélög,
sem stofnuð hafa verið eftir gildistöku núgildandi laga um tekjuskatt
og eignarskatt, þ.e.a.s. eftir 1. janúar 1979, fer að öllu leyti eftir
ákvæðum 3. tl. 1. mgr. 2. gr. laganna. Orðalag ákvæðisins og forsaga
þess bera það með sér, að skattaleg staða sameignarfélaga skuli
ákvarðast strax í upphafi og síðar verði engin breyting á þeirri stöðu.
Þetta kunna að þykja nokkuð ósveigjanlegar reglur, en rök hníga að
þeim svo sem los á sjálfu félagsforminu, sem fyrr er nefnt, og vand-
kvæði, sem skapast, sé breytt um skattalega stöðu. 1 úrskurði Ríkis-
skattanefndar nr. 508, dags. 14. setpember 1983, reyndi á þessi ákvæði:
Málavextir voru þeir, að sameignarfélag tveggja manna var
stofnað á árinu 1974 og tilkynnt til skráningar í firmaskrá 30.
janúar 1974. Á sama tíma var gerður skriflegur félagssamningur.
Ekki var þess getið í tilkynningu til firmaskrármnar, að félagið
skyldi vera sjálfstæður skattaðili, en í félagssamningnum var
tekið fram, að svo skyldi vera. Gjaldárin 1975-1979 hafði ekki
verið lagt á félagið sem sjálfstæðan skattaðila, og ekki kom fram,
að andmælum hefði verið hreyft við þeirri tilhögun af hálfu
félágsmanna. Talið var fram fyrir félagið sem sjálfstæðan skatt-
aðila árin 1980 og 1981, en skattstjóri féllst ekki á sjálfstæða
41