Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1985, Side 50

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1985, Side 50
sjálfstæðan skattaðila." Kröfu félagsins var því hafnað. Áætluð opinber gjöld á það gjaldárið 1978 voru felld niður og tekið fram, að tekj ur og eignir þess samkvæmt innsendu skattframtali skyldu skattlagðar með tekjum og eignum félagsaðila. Fyrir lá, að ekki hafði verið gerður skriflegur félagssamningur milli aðila, en N. N. upplýsti, að samkvæmt munnlegu samkomulagi um „félags- stofnunina“ ættu samlagsfélagar ekki rétt til hlutdeildar í tekj- um félagsins. Voru hreinar tekjur félagsins því skattlagðar með tekjum N.N. og hrein eign þess með eignum hans. V. UPPHAF OG LOK SKATTSKYLDU SAMEIGNARFÉLAGA. Ekki eru um það sérstök ákvæði í 1. nr. 75/1981, við hvaða tíma- mörk beri að miða upphaf og lok skattskyldu, hvorki varðandi sam- eignarfélög né aðra skattaðila. Nokkrir úrskurðir hafa verið kveðnir upp af Ríkisskattanefnd, þar sem reyndi á upphaf skattskyldu, þ.á m. hjá sameignarfélagi. Telja verður, að félagsstofnun hafi áhrif bæði i einkaréttar- og skattaréttarlegu tilliti, frá því að gildur og bindandi félagssamningur hefur verið gerður.10) Á þetta reynir einkum, þegar yfirtekinn er rekstur í sambandi við stofnun sameignarfélags, t.d. þeg- ar félagið tekur við þeim rekstri, sem félagsmenn, einn eða fleiri, hafa hver fyrir sig haft með höndum sem einstaklingsfyrirtæki. Á þetta getur einnig reynt í sameignarfélögum, sem ekki eru sjálfstæðir skatt- aðilar, t.d. vegna hugsanlegrar tekjudreifingar, svo sem þegar aðili með einstaklingsrekstur tekur einhvern úr sifjaliði sínu inn í reksturinn með afturverkandi skiptingu á rekstrarniðurstöðu. Á þetta ætti hins vegar ekki að þurfa að reyna við breytingu á sameignarfélagi, sem ekki hefur verið sjálfstæður skattaðili, í sjálfstæðan skattaðila, þar eð til slíkrar breytingar á ekki að geta komið, með því að staða þessara félaga varðandi skattaðild á að liggja fyrir þegar í upphafi, svo sem áður hefur verið fjallað um. 1 dönskum skattarétti er viðurkennt, að stofnun félaga, bæði sam- eignarfélága, sem þar í landi geta ekki borið sjálfstæða skattskyldu, og hlutafélaga, geti haft afturverkandi áhirf í þeim tilfellum, þégar yfirtekinn er rekstur í sambandi við stofnunina, þannig að reksturinn í allt að 6 mánuði fyrir stofnunina heyri hinu nýstofnaða félagi til í skattalegu tilliti.* 11) I íslenskum skattarétti er þessu ekki til að dreifa. 10) Sbr. Ole Bj0rn o.fl.: Lærebog om indkomstskat, 4. útg. (Kanpmannahöfn 1981), bls. 460. 11) Sama rit, bls. 408 og 460. 44

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.