Tímarit lögfræðinga - 01.05.1985, Page 51
Það er því félagsstofnunin sjálf, sem hefur úrslitaþýðingu um upp-
haf skattskyldunnar, og verður því ekki talið, að skráningardagur í
firmaskrá sé ákvarðandi í þessum efnum. Sama á við um skrásetningu
hlutafélags í hlutafélagaskrá. Færslur í þessar skrár hafa þó óhjá-
kvæmilega sönnunargildi. 1 Hrd. 1973, bls. 528, má ætla, að á sönnunar-
gildi skráningar í firmaskrá reyni að nokkru á þann veg, að í dómin-
um þótti varhugavert að telja sannað, að stefndi í málinu hefði fyrr
en við skráninguna orðið cignaraðili að tilteknum rekstri, þ.e. að
stofnast hefði sameignarfélag fyrr, enda þótt ýmislegt benti til þess,
en ekki þótti unnt að léggja til grundvallar um þetta skýrslutöku
skattrannsóknarstjóra eins og henni var háttað.
Þegar sameignarfélag er sjálfstæður skattaðili, hlýtur upphaf skatt-
skyldunnar að liggja nærri tilkynningu til firmaskrárinnar vegna skil-
yrðis 3. tl. 1. mgr. 2. gr. 1. nr. 75/1981 um skráningu í firmaskrá og 1.
mgr. 16. gr. 1. nr. 42/1903, sem áskilur, að tilkynna skuli þá aðila, sem
tilkynningarskyldir eru skv. firmalögunum, áður en atvinnureksturinn
byrjar. 1 úrskurði Ríkisskattanefndar nr. 555, dags. 24. ágúst 1979,
brast kæranda sönnun fyrir því, að sameignarfélag hefði stofnast fyrr
en það var tilkynnt til skráningar í firmaskrá. Engin gögn, svo sem
dagsettur stofnsamningur, höfðu verið lögð fram til stuðnings þeirri
staðhæfingu, að rekstur félagsins hefði byrjað fyrr. Ríkisskattanefnd
taldi, að ekki hefði verið sýnt fram á, að sameignarfélag það, sem um
ræddi, hefði uppfyllt skilyrði C-liðs 1. mgr. 5. gr. 1. nr. 68/1971 til þess
að vera sjálfstæður skattaðili frá ársbyrjun 1977, en tilkynning til
firmaskrár var dagsett 5. maí 1977, enda þótt félagsmönnunum kynni
að hafa verið heimilt að semja svo um, að nýr lögaðili, sameignar-
félagið, yfirtæki rekstur þeirra frá og með hinu fyrra tímamarki.12)
Þá má geta þess hér, að reynt hefur á upphaf skattskyldu hluta-
félaga, sbr. t.d. úrskurði Ríkisskattanefndar nr. 455, dags. 24. júní
197413) og nr. 197, dags. 2. apríl 1976.14) Miðað hefur verið við stofn-
fundardág, en ekki skráningu í hlutafélagaskrá. Á það má benda, að
skv. 1. nr. 32/1978, um hlutafélög, getur liðið mun lengri tími frá
stofnun hlutafélags, þar til skráning þess fer fram í hlutafélagaskrá,
en áður var, sbr. 11. gr. laganna.
Eins og áður segir eru ekki í 1. nr. 75/1981 ákvæði um þau tíma-
mörk, sem lok skattskyldu miðast við, fremur en um um upphaf henn-
ar. Þó er það ákvæði í 114. gr. laganna, að óheimilt er að slíta félagi,
12) Úrsk. er birtur í ágripi í úrskurðasafni Ríkisskattanefndar 1979, bls. 18-19.
13) Úrsk. er birtur í ágripi í úrskurðasafni Ríkisskattanefndar 1974 og 1975, bls. 8-9.
14) Úrsk. er birtur í ágripi í úrskurðasafni Ríkisskattanefndar 1976-1978, bls. 7-8.
45