Tímarit lögfræðinga - 01.05.1985, Síða 61
IX.
VERÐBREYTINGARFÆRSLUR MEÐ TILLITI
TIL SAMEIGNARFÉLAGA.
Segja má, að ekki gildi neinar meiri háttar sérréglur um sameignar-
félög að því er tekur til verðbreytingarfærslna. Að því er varðar sam-
eignarfélög er fremur um það að ræða, að beiting ákvæða um verð-
breytingar dragi dám af þeirri sérstöðu, sem þessi félög hafa í skatta-
legu tilliti umfram aðra lögaðila. Allt að einu þykir tilefni til þess að
gera nokkra grein fyrir þessu viðfangsefni, enda verða lagaákvæðin
um verðbreytingar að teljast allmerkileg nýmæli. Ymis álitaefni koma
upp við framkvæmd þeirra, þegar um sameignarfélög er að ræða, og
í úrlausn þeirra endurspeglast glöggt margnefnd sérstaða þessara
félaga í skattaréttarlegu tilliti.
Svo sem kunnugt er, voru mörg nýmæli tekin upp með hinum nýju
lögum um tekjuskatt og eignarskatt, sem ætlað er að taka tillit til
þeirra áhrifa, sem almennar verðbreytingar hafa. Þannig er málum
háttað um söluhagnað og fyrningar. Þá skal samkvæmt 53. gr. laganna
reikna lögaðilum og þeim mönnum, sem stunda atvinnurekstur eða
sjálfstæða starfsemi, tekjur eða gjöld vegna verðbreytinga, þ.e.a.s.
taka tillit til þeirra áhrifa, sem almennar verðbreytingar hafa á eignir
þeirra og skuldii' eftir því, sem nánar er kveðið á um í greininni. Eignir
og skuldir lögaðila eru háðar þessum reglum svo og þær eignir og skuld-
ir manna, sem hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starf-
semi, sem rekstrinum eru tengdar. Er reiknaður tiltekinn hundraðhluti
af mismun sérstaklega tilgreindra eigna og skulda og þannig fundin
fjárhæð færð til gjalda, séu eignir hærri, en til tekna, séu skuldir hærri.
Til eigna við þennan útreikning telj ast allar óverðtryggðar eignir, eign-
ir sem ekki hækka í verði við almennar verðhækkanir, enn fremur verð-
tryggðar eignir og þær eignir, sem njóta almennra verðlagshækkana,
ef verðtryggingin eða verðhækkunin telst til skattskyldra tekna sam-
kvæmt lögunum. Til skulda í þessu sambandi teljast hvers konar skuld-
ir með örfáum undantekningum. Sérstaklega er tekið fram ásamt
öðru, að skuldir og inneignir eignaraðila sameignarfélaga, sbr. 3. tl. 2.
gr., teljist ekki til eigna og skulda við þennan útreikning. Sama gildir
um skuldir og inneignir þeirra manna, sem stunda atvinnurekstur eða
sjálfstæða starfsemi, hjá rekstrinum.
Ekki verður gerð nánari grein fyrir þessum ákvæðum hér, en farið
nokkrum orðum um 5. mgr. 53. gr., þar sem beiting hennar sýnir Ijós-
lega mismun skattalegs uppgjörs vegna sameignarfélaga eftir því, hvort
55