Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Page 48
að segja, að hún hafi farið hægt af stað. Eftir 5 mánuði höfðu aðeins
verið kveðnir upp 3 dómar um samfélagsþjónustu í Kaupmannahöfn.
Var þar um að ræða dóma fyrir auðgunarbrot. Einn þessara þriggja
dómþola framdi nýtt brot, eftir að dómur gekk, og er hann þar að auki
mætti ekki, þegar hann átti að hefja vinnu, var dóminum breytt í ó-
skilorðsbundna refsivist. I u.þ.b. 20 öðrum málum hafði komið til álita
að beita samfélagsþjónustu, og höfðu farið fram persónukannanir.
Átta þessara mála var lokið. 1 einu tilviki var um að ræða ofbeldi gégn
lögreglunni. Dæmt var óskilorðsbundið fangelsi með fimm atkvæðum
gegn einu, en þessi eini dómari vildi dæma til samfélagsþjónustu. Ákærði
var talinn hæfur til samfélagsþjónustu. I öðru tilviki hafði ákærði gerst
sekur um auðgunarbrot, en vegna fíkniefnaneyslu var hann talinn óhæf-
ur til samfélagsþjónustu og var dæmdur í óskilorðsbundið fangelsi.
Hinum 6 málunum lauk með sýknu eða skilorðsdómi án skilorðs um
samf élagsþ j ónustu.
Það kom mönnum á óvart, hve dómar um samfélagsþjónustu og mál,
þar sem hún kom til álita, voru fá. 1 fjölmiðlum var tregðu réttarkerf-
isins kennt um, að tilraunaskipanin með samfélagsþjónustu fór svo
hægt af stað, og hlutu dómarar nokkurt ámæli fyrir. Því var til svarað,
að ekki væri unnt að dæma til samfélagsþjónustu, nema krafa um það
kæmi fram. Það væri því ákæruvaldsins og ekki síður verjenda að hafa
frumkvæðið og sjá til þess, að persónukönnun færi fram, áður en málið
kæmi fyrir dóm. Auðvitað gætu dómarar líka kannað, hvers vegna
samfélagsþjónustu væri ekki krafist, einkum í þeim málum, þar sem
hún kæmi vel til greina.
Þá kom einnig fram það sjónarmið meðal dómara, að meginástæða
þess, að svo fáir dómar voru kveðnir upp um samfélagsþjónustu, væri
sú, að notkunarsvið samfélagsþjónustu væri mjög þröngt samkvæmt
tilraunaskipaninni, þar sem henni skyldi aðeins beitt í ákveðnum til-
vikum, þar sem ella hefði verið beitt refsivist. Eftir því virðist hafa
verið farið í Kaupmannahöfn. Einnig hefur hér áhrif, að fyrst og fremst
á að beita samfélagsþjónustu vegna auðgunarbrota, en einmitt þar var
oft beitt skilorðsdómum endranær. Loks var á sama tíma og sam-
félagsþjónustan gekk í gildi gerð breyting á hegningarlögum, þar sem
refsihámark fyrir auðgunarbrot var lækkað og mælt með aukinni notk-
un skilorðsdóma. Niðurstaðan af þessu varð sú, að mælt var með því
að stækka tilraunasvæðið til þess að fá fleiri dóma. Frá árinu 1985 hef-
ur tilraunaskipanin með samfélagsþjónustu tekið til landsins alls.
Um miðjan september 1984 höfðu farið fram persónukannanir í
málum 454 einstaklinga. Af þeim töldust um 75% hæfir til að gegna
42