Tímarit lögfræðinga - 01.08.1987, Page 52
Markús Sigurbjörnsson borgarfógeti:
DÓMSVALD SKIPTARÉTTAR
VIÐ SKIPTI DANARBÚA
1. VIÐFANGSEFNI SKIPTARÉTTAR
Um viðfangsefni skiptaréttar er einkum fjallað í tvennum lögum,
gjaldþrotalögum nr. 6/1978 (gþl.) og lögum um skipti á dánarbúum og
félagsbúum o.fl. nr. 3/1878, hér á eftir nefnd skiptalög (skl.). 1 hinum
fyrrnefndu lögum er fjallað um skipti þrotabúa, en í hinum síðar-
nefndu um skipti dánarbúa, búa hjóna, sem ekki koma sér saman um
fjárskipti við skilnað, skipti eigna samlagsfélaga og annarra sam-
eigna, sem 90. gr. laganna felur skiptarétti að annast, þar á meðal
eignaskipti við slit óvígðrar sambúðar. I þessum tvennum lögum er að
finna fyrirmæli um yfirgripsmestu viðfangsefni skiptaréttar, en sér-
reglur um búskipti er einnig að finna í lögum nr. 86 og 87/1985, þar
sem fjallað er um slit viðskiptabanka og sparisjóða, sem skiptarétti er
falið að fara með. Skiptaréttur fer að auki með ýmis viðfangsefni, sem
falla utan búskipta samkvæmt almennri hugtakanotkun, og er þar
helst til að telja slit á fjárfélagi hjóna samkvæmt VI. kafla laga nr. 20/
1923 og gerð nauðasamninga án undangenginna gj aldþrotaskipta sam-
kvæmt III. kafla lága nr. 19/1924. Þá er skiptarétti einnig í afmörkuð-
um tilvikum falið dómsvald um ágreiningsefni, sem rísa utan við hið
almenna verksvið hans. Fer skiptaréttur með slíkt vald um ágreining,
sem rís við slit skilanefndar á hlutafélagi samkvæmt 121. gr. laga nr.
32/1978, og á hið sama við varðandi samvinnufélög samkvæmt 2. mgr.
37. gr. laga nr. 46/1937. Úr lögum hefur hins vegar verið nurnin ein
slík sérheimild til viðbótar, sem var að finna í 2. mgr. 7. gr. laga um
ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot, nr. 31/1974.
Samkvæmt framantöldum lagaheimildum fer skiptaréttur í megin-
atriðum með tvíþætt hlutverk. Annars vegar hefur hann með höndum
framkvæmd búskipta og slita á fjárfélagi hjóna, svo og gerð nauða-
samninga. Hins vegar fer skiptaréttur með vald til að leysa úr ágrein-
ingsefnum, sem rísa í tengslum við framkvæmd þessara viðfangsefna,
46