Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Page 16

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Page 16
en átt eignir hér á landi.4) Réttarreglur um þessi efni eru oft mis- munandi eftir löndum og því verður í ágreiningstilfellum að taka af- stöðu til þess eftir rétti hvaða lands skuli úr þeim leyst. Þá kemur til kasta þessarar fræðigreinar. Nefnd tilvik eru dæmi um viðfangs- efni alþjóðlegs einkamálaréttar. Einnig má skilgreina fræðigreinina þannig, að hún segi til um það hvenær íslenskir dómstólar eða stjórn- völd beita erlendum réttarreglum í úrlausnum sínum. 1 fræðilegri umfjöllun er alþjóðlegum einkamálarétti gjarnan skipt í almennan og sérstakan hluta. 1 almenna hlutanum er fjallað um við- fangsefni greinarinnar og sögu, skýrð eru grunnhugtök hennar og heiti og gerð grein fyrir réttarheimildum. Þar er einnig fjallað um einkaréttarlögsögu íslenskra dómstóla gagnvart mönnum, sem búsett- ir eru erlendis, og það, hvort viðurkenna beri erlenda dóma og stjórn- valdsákvarðanir hér á landi. í sérstaka hlutanum er hins vegar fjallað um lagaskilareglur á einstökum réttarsviðum, svo sem eins og í sifja-, erfða- og persónurétti, fjármunarétti o.s.frv. Lagaskilareglur eru formreglur en ekki efnisreglur. Þær leysa ekki úr því ágreiningsefni, sem um er að tefla, heldur segja til um það eftir lögum hvaða lands skuli farið varðandi efnisúrlausn, þegar sakar- efni tengist erlendum rétti.5) Að þessu leyti má líkja lagaskilaregl- um við réttarfarsreglur, sem hafa þýðingu varðandi málsmeðferð, en leysa ekki úr réttarágreiningi. 4) Karsten Gaarder, Innföring i international privatrett, Oslo 1975, bls. 1. 5) O. A. Borum, Lovkonflikter, 6. útg. Khöfn 1967, bls. 2, Allan Philip, tilvitnað rit bls. 13, Karsten Gaarder, tilvitnað rit bls. 3. Eggert Óskarsson lauk embættisprófi í lögfræði árið 1970. Hann starfaði sem fulltrúi sýslu- mannsins í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu frá 1. mars 1970, lögfræðingur hjá Brunabóta- félagi íslands frá 1. september 1971, fulltrúi sýslumannsins i Rangárvallasýslu frá 1. október 1975, skipaður borgardómari í Reykjavík frá 1. apríl 1982. Hann hefur kennt alþjóðlegan einka- málarétt við lagadeild Háskóla íslands 1986 og 1987. Skipaður prófdómari í sifja-, erfða- og persónurétti við lagadeild Háskóla íslands frá árinu 1986. 10

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.