Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Side 36
áhrif hér á landi.24) Rétt er þó að hafa í huga í því sambandi, að þegar
um varnarþingssamninga er að ræða, verða frávísunaráhrifin ekki
rakin til hins erlenda dóms sem slíks, heldur til ákvæða varnarþings-
samningsins.
Að því er fordæmisáhrifin varðar, má velta því fyrir sér, hvort
erlendur dómur, sem gengið hefur á grundvelli varnarþingssamnings,
verði án endurskoðunar lagður til grundvallar úrlausnum íslenskra
dómstóla með svipuðum hætti og erlend gerðardómsúrlausn. Þeirrar
skoðunar er 0. A. Borum að því er danskan rétt varðar.25) Allan Philip
telur erlendan dóm, sem byggir lögsögu sína á varnarþingssamningi,
hafa aukið gildi, en bendir eigi að síður á, að framhjá því verði ekki
litið, að jafnvel í slíkum tilvikum eigi danskir dómstólar sjálfstæðan
rétt til þess að endurskoða hina erlendu dómsúrlausn.20)
Áður er að því vikið, að erlendir gerðardómar eru, að fullnægðum
ákveðnum lágmarksskilyrðum, lagðir til grundvallar dómsúrlausnum
hér á landi, þegar mál er höfðað fyrir íslenskum dómstólum til þess að
fá gerðardómana aðfararhæfa. Öll rök mæla með þeirri niðurstöðu,
að hið sama gildi um þá erlendu dóma, sem kveðnir eru upp af dóm-
stólum erlends ríkis á grundvelli varnarþingssamnings. Er vandséð,
að meiri hættur séu því samfara að viðurkenna slíka dóma en erlenda
gerðardóma.
Ljóst er, að sönnunarfærsla sú, sem fram fer fyrir erlendum dóm-
stóli, getur haft þýðingu í síðari málaferlum hér á landi. Þá getur og
sönnunarmat erlenda dómstólsins og beiting hans á erlendum réttar-
reglum, eins og áður segir, haft þýðingu við eftirfarandi málaferli
hér á landi.
Það ræðst væntanlega mjög af viðbrögðum málsaðilja hverju sinni,
hver áhrif til verksparnaðar og hagræðingar erlendur dómur hefur hér
á landi að því er varðar sönnunarfærslu, sönnunarmat og beitingu er-
lendra réttarreglna. Líklegt má þó telja, að íslenskur dómstóll legði
það til grundvallar úrlausn sinni, ef ekki er á öðru byggt af hálfu
málsaðilja, að erlendi dómstóllinn hafi beitt þeim réttarreglum, sem
beita ber samkvæmt íslenskum lagaskilareglum, að réttarreglum
þessum hafi verið réttilega beitt og að sönnunarmat erlenda dóm-
stólsins sé rétt. Gagnger endurskoðun þessara atriða fer því væntan-
24) Um frávísunaráhrif varnarþings- og gerðardómssamninga í Danmörku, sjá Allan Philip,
áður tilvitnað rit á bls. 101. Urn frávísunaráhrif gerðardómssamninga, sjá Jónatan
Þórmundsson, Nokkrar hugleiðingar um gerðardóma, Úlfljótur 1. tbl. 1963, bls. 36.
25) O. A. Borum, áður tilvitnað rit, bls. 202.
26) Allan Philip, áður tilvitnað rit, bls. 121.
30