Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Page 47

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Page 47
Málsatvik voru þau, að með úrskurði skiptaréttar Reykjavíkur 6. desember 1985 var bú skipafélagsins Hafskips h.f. tekið til gjaldþrota- skipta. Með bréfi dags. 12. maí 1986 lýsti Geyserfood ApS í Danmörku kröfu í búið vegna tjóns á farmi, sem Hraðfrystihús Þórshafnar h.f. sendi með skipi félagsins til Kaupmannahafnar og var Geyserfood ApS viðtakandi farmsins samkvæmt farmskírteini. Með utanréttarstefnu, útgefinni 6. desember 1985, hóf Geyserfood ApS málarekstur fyrir sjó- og verslunardómi Kaupmannahafnar, m.a. á hendur Hafskipi h.f., til heimtu áðurgreindrar bótafjárhæðar. Þann 7. janúar 1986 var stefnan árituð af dómstólnum um þingfestingu málsins 26. febrúar s.á. Ekki lá fyrir í skiptaréttarmálinu, hvort og eftir atvikum hvenær stefna þessi hefði verið birt né heldur fyrir hverjum. Sjó- og verslunardómsmálið var rekið á sama grund- velli og skiptaréttarmálið. Var Sjó- og verslunardómsmálið ekki til lykta leitt, þegar skiptaréttur Reykjavíkur tók hina lýstu kröfu til úrskurðar. I úrskurði skiptaréttar segir, að sóknaraðili hafi lýst því yfir, að hann haldi til streitu kröfum á hendur varnaraðilja fyrir sjó- og verslunardómi Kaupmannahafnar og hafi ekki komið fram, að hann hefði í hyggju að falla frá þeirri málshöfðun. Útivist varð af hálfu Hafskips h.f. í sjó- og verslunardómsmálinu í Kaupmannahöfn, en aðrir stefndu sóttu þing. Dómur í því máli hafði, eins og áður segir, ekki verið kveðinn upp, þegar skiptaréttur Reykjavíkur tók kröfu Geyserfood ApS til úrskurðar. Skiptarétturinn tók það ex officio til athugunar, hvort málshöfðun Geyserfood ApS fyrir sjó- og verslunar- dómi Kaupmannahafnar stæði því í vegi, að úr ágreiningi þrotabús Hafskips h.f. og Geyserfood ApS yrði leyst fyrir skiptaréttinum. 1 úrskurðinum segir, að málið fyrir sjó- og verslunardómi Kaup- mannahafnar sé sýnilega höfðað eftir uppkvaðningu úrskurðar skipta- réttar Reykjavíkur um töku á búi Hafskips h.f. til gjaldþrotaskipta. Þá er vikið að 8. mgr. 104. gr. laga nr. 85/1936 og hlutverki því, er sú grein gegnir. Segir þar m.a., að reglunni sé augljóslega ætlað það hlutverk að fyrirbyggja, að fleiri en eitt mál séu rekin í senn um sömu kröfu, sem lyktað geti eftir atvikum með misjöfnum niðurstöðum. Efnisúrskurður skiptai’éttarins í málinu verði samkvæmt 195., sbr. 223. gr. laga nr. 85/1936, talin bindandi úrlausn hér á landi um þá kröfu, sem sóknaraðili haldi upp á varnaraðilja. Um dóm sjó- og verslunardóms Kaupmannahafnar gegni hins vegar öðru máli. 1 sjó- og verslunardómsmálinu hafi orðið útivist af hálfu Hafskips h.f. Þá ályktun verði að draga af 3. gr. Norðurlandasamningsins frá 1932,

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.