Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Blaðsíða 49

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Blaðsíða 49
í landi, enda hafi skilyrðum „litis pendens" verkana ekki verið full- nægt í málum þessum. Af dómunum megi hins vegar ráða, að höfðun skilnaðarmáls erlendis geti haft „litis pendens" verkanir í Danmörku, ef skilyrðum þess sé á annað borð fullnægt. Hann bendir þó á, að lítið þurfi til að koma, til þess að svo verði litið á, að ekki sé um sömu málaferlin að ræða. Sama viðhorf kemur fram hjá Allan Philip.58) Bernhard Gomard heldur því á hinn bóginn fram í ritinu Civil- processen,59) að skilnaðarmál, sem rekið er fyrir erlendum dómstól- um, hafi almennt ekki „litis pendens“ verkanir í Danmörku. 1 öðru riti sama höfundar, Kommenteret Pietsplejelov,00) segir þó, að gera verði ráð fyrir því, þegar skilnaðarmálin eru algjörlega eins (identisk), að danskir dómstólar hafi a.m.k. heimild til að fresta málsmeðferð- inni, þar til dómur er genginn erlendis. XI. FJÖLÞJÓÐLEGT SAMSTARF. í köflum IV, VI, VIII og IX hér að framan er vikið að samstarfi Norðurlandaþjóða varðandi gagnkvæma viðurkenningu dóma og úr- skurða, sem um ræðir í hinum svokölluðu Norðurlandasamningum á sviði alþjóðlegs einkamálaréttar og einkamálaréttarfars. Ríkin sex, er saman stóðu að stofnun Efnahagsbandalags Evrópu, EBE, gerðu hinn 27. september 1968 með sér gagnkvæman samning um lögsögu og viðurkenningu dóma (The EEC Convention of 27 September 1968 on Jurisdiction and the Enforcement of Judgments in Civil and Commercial Matters). Gekk samingurinn í gildi varðandi ríki þessi hinn 1. febrúar 1973. Þegar Danmörk, Irland og Stóra-Bretland síðar gerðust aðilar að bandalaginu, skuldbundu þau sig til þess að staðfesta framangreindan lögsögu- og viðurkenningarsamning EBE. Var það gert með sérstökum samningi, sem undirritaður var 9. október 1978, um aðild þessara þriggja ríkja að samningnum frá 1968. Samningurinn frá 1978 hefur auk þess að geyma viðbætur við og breytingar á samningnum frá 1968. I Danmörku voru sett lög nr. 325 frá 4. júní 1986 um staðfestingu viðurkenningarsamningsins frá 1978. Með reglugerð nr. 724 frá 22. 58) Allan Philip, áður tilvitnað rit á bls. 131. 59) Bernhard Gomard, Civilprocessen, bls. 478. A bls. 627 í sama riti bendir höfundur á, að lögsögureglur í skilnaðarmálum séu víðast hvar mjög rúmar og því eigi máls- aðiljar eftir atvikum að geta höfðað skilnaðarmál hvor í sínu heimalandi. 60) Kommenteret Retsplejelov á bls. 497. 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.