Tímarit lögfræðinga - 01.04.1988, Blaðsíða 58
kvaðningu við öflun sönnunar, og ber beiðanda að greiða honum
ferðakostnað og þóknun eftir úrskurði dómara.
Þá var í XIV. kafla frumvarpanna, en þeir kaflar voru einnig sam-
hljóða, tekið upp það nýmæli að heimila öflun gagna fyrir erlendum
dómi, hvort heldur sú gagnaöflun varðaði dómsmál, sem höfðað hafði
verið, eða deilu sem kynni að leiða til dómsmáls. XIV. kafli er svo-
hljóðandi:
Um öflun gagna erlendis.
193. gr.
Dómara, sem með mál fer, er rétt að ákveða að leitað skuli
gagna fyrir erlendum dómi, svo sem með vitnaleiðslu, mati, aðilja-
yfirheyrslu samkvæmt heitfestingu eða með öflun skjala.
194. gr.
Nú telur aðili sig þurfa að afla málsgagna fyrir erlendum dómi,
og er honum rétt að snúa sér til dómara þess, sem með mál hans
fer eða fara mundi, ef því væri að skipta, og beiðast þess, að
dómari sendi málaleitun til þess erlends dóms, er í hlut á, um
framkvæmd dómsathafna þeirra, sem þörf er á. Beiðni aðilja
skal fylgja skilmerkileg skýrsla um málsefni. Nú óskar aðili t.d.
vitnaleiðslu, og skal hann skýra frá nafni vitnis, heimili eða
dvalarstað og atriðum þeim, sem vætti skal varða. Greind skulu
skjöl, sem aðili vill láta leggja fyrir vitni eða krefja það um.
Ef mats er beiðst, skal matsefni afmarkað og þess getið hverjum
kostum matsmenn þurfi að vera búnir. Bjóða skal aðili jafn-
framt fram tryggingu, er dómari metur gilda, fyrir þeim kostn-
aði, sem af gagnaöflun leiðir. Verður beiðni hans eigi tekin til
greina, fyrr en trygging er sett.
195. gr.
Nú telur dómari skilyrði vera til að afla gagna fyrir erlendum
dómstól, og semur hann þá málaleitun til þess dóms. Málaleitun
skal geyma stutta og glögga greinargerð um mál það, sem afla
skal gagna í, og nákvæma skýrslu um þau atvik eða atriði, sem
sanna þarf eða skýra, og greinargerð um, hverra gagna skuli
afla. Ef vættis er beiðst, skulu greindar spurningar til vitna, ef
því verður við komið. Taka skal fram, hvort gera þarf hinum
íslenska dómara eða aðiljum viðvart um stund og stað gagna-
öflunar og, ef svo er, þá með hverjum fyrirvara.
52