Ægir - 01.12.1994, Page 15
NÓVEMBER
veröi svipaö og í fyrra eöa um 30
þúsund tunnur.
■■■■ íslenskt útgerðarfyrirtæki
Uii tekur á leigu litháískan út-
hafsveiðitogara, Anyksciai. Skipið
fer á úthafskarfaveiðar á Reykja-
neshrygg með 40 manna áhöfn.
Skipstjóri verður Hörður Guð-
jónsson. Marbakki hf. mun sjá
um alla sölu afurða.
PPI Skagstrendingur hf. á
■■■ Skagaströnd gerist aðili að
sameignarfélagi um loðnufryst-
ingu. Nýta á báða frystitogara
Skagstrendings, Arnar og Örvar,
til loðnufrystingar á Seyðisfirði á
hentugum tíma.
Nl Skinney hf. á Höfn í
fiofl Homafirði hefur gengið frá
kaupum á nýju skipi. Nýja skipið
er skoskt nóta- og togveiðiskip
sem heitir Vigilante. Þab er meb
svokölluðum RSV sjókælitönkum
fyrir aflann sem er nýmæli í ís-
lensku fiskiskipi. Skipinu veröur
einkum haldib til síldveiða en út-
gerðarmenn þess vilja gjarnan
eignast loðnukvóta. Burðargeta
Vigilante er 360-400 tonn af síld
eða loönu mibað við sjókælingu
en hámarksburöargeta er 500
tonn. Vib kaupin verbur Erling
KE tekinn af skipaskrá og Freyr SF
hefur verið auglýstur til sölu.
RJI Loðnumælingar Hafrann-
fiífl sóknarstofnunar sýna að
hrygningarstofn lobunnar er að-
eins 570 þúsund tonn. Þessi nib-
urstaöa kemur fiskifræðingum í
opna skjöldu en á grundvelli
hennar má aðeins veiða 200 þús.
tonn í viðbót á yfirstandandi ver-
tíb. Áður hafði verið reiknað með
allt að 1400 þúsund tonna afla.
Wf% Þerney RE kemur að landi
fiðfefl með metafla. Heildarafli
nam um 800 tonnum upp úr sjó
og var meginuppistaðan í aflan-
um karfi. Aflaverðmætið er ná-
lægt því að vera 100 milljónir
króna.
SJAVARSIÐAN
MAÐUR MÁNAÐARINS
Sævar Gunnarsson nýkjörinn formaður Sjómannasambands íslands fæddist í
Ólafsfirði 3. ágúst 1943. Hann er sonur hjónanna Gunnars Björnssonar sjómanns
og Birnu Björnsdóttur. Gunnar var um árabil formabur Sjómannafélagsins í Ólafs-
firði. Sævar ólst upp í Ólafsfirði og fór fyrst til sjós 15 ára gamall 1959 á Einari
Þveræing sem Magnús Gamalíelsson gerði út frá Ólafsfirði, síðar á Ólafi Bekk og
Sæþóri. Sævar stundaði bátasjómennsku samfleytt til ársloka 1987, á bátum frá
Ólafsfirði til 1965 en þá fluttist hann suður. Hann var á Héðni frá Húsavík, í Þor-
lákshöfn á ísleifi en 1974 flutti hann til Grindavíkur.
í Grindavík reri hann á ýmsum bátum, Hópsnesi
og Hafbergi en síðustu átta árin með Guðjóni Ein-
arssyni skipstjóra á Fiskanesbátunum Geirfugli,
Skarfi og Gauk. 1983 gerðist hann formabur í Sjó-
manna- og vélstjórafélagi Grindavíkur og næstu ár
starfaði hann að félagsmálum sjómanna en jafn-
framt sem sjómaður. 1987 fór hann í land og hefur
nú hengt sinn sjóstakk á snaga ab sinni. Sævar er
með 1000 ha. vélstjóraréttindi, svokallað Fiskifé-
lagspróf, og var vélstjóri frá 1964. Hann var kosinn varaformaður Sjómannasam-
bandsins 1992 og tók þá við af Guðmundi Hallvarðssyni en hefur setið í forystu-
sveit sambandsins, framkvæmdastjórn og sambandsstjórn, í 10 ár.
Sævar er næstelstur fimm bræbra. Elstur er Björn sem býr á Akureyri og var til
sjós í 12 ár, þá Sævar, Birgir býr í Ólafsfirði og hefur verið á Sigurbjörgu ÓF frá
1966, Gunnar vélvirki býr á Dalvík og hefur verib lítib til sjós. Yngstur er Sigurbur
sem hefur verið 20 ár til sjós, lengst á Jóhannesi Gunnari og Hópsnesinu í Grinda-
vík.
Sævar er giftur Rannveigu Hallgrímsdóttur og þau eiga fjögur börn. Þau eru
Gunnar, Rósmundur og Guðjón og yngst er Hólmfríður. Synirnir hafa allir fengist
eitthvað við sjómennsku og Rósmundur er háseti á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK.
Sævar segir að helsta baráttumál sjómanna nú séu fiskverðsmálin.
„Þessi mál eru í miklum ólestri og ólíðandi hvernig ástandið er í dag. Ég vil ab
allur fiskur sem landað er innanlands fari á markab og sé verðlagður þar. Þetta er
helsta baráttumál sjómanna."
ORÐ í HITA LEIKSINS
„Víö ætlum ekki að drepast, heldur berjast." Halldór Karl Hermannsson
sveitarstjóri á Suðureyri í viðtali við BB á ísafirði.
„Hvað sem fiskifræðingar segja þá þekkja menn hér muninn á hrognum og
sviljum annars vegar og mör hinsvegar." Haraldur Jörgensen á Neskaupstað í
Austurlandi 17. nóvember vegna þess að fiskifræðingar eru tregir til að staðfesta
að síld úr norsk-íslenska stofninum sé að veiðast fyrir Austurlandi.
„Þessi gífurlega aukning smábátaaflans er stórhættuleg að mínu mati og þar fyrir
utan er aflinn af þessum bátum ekki það hráefni sem við sækjumst eftir að fá til
vinnslu." Einar Svansson á Sauðárkróki í samtali við Fiskifréttir 4. nóvember.
„Menn hafa öll sín réttindi og tryggingar í lagi og það er af og frá að þarna sé
um einhverja þrælasamninga að ræba." Runólfur Birginsson framkvæmdastjóri
Siglis sem siglir undir hentifána.
ÆGIR DESEMBER 1994 15