Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1994, Page 16

Ægir - 01.12.1994, Page 16
Hreinna og betra loft Véltak hf. kynnir búnab sem hreinsar loft í vélarrúmi „Þab er mjög útbreidd stefna í dag að fyrirtæki sérhæfi sig og skapi sér þannig sérþekkingu sem kemur vib- skiptavinum þeirra til góða. Það er of algengt ab lítil fyrirtæki fúskist í mörgum málum, starfsmenn viti lít- ið um mikib og upphafleg markmið glatast og skaba viðskiptin," segir Gubbjartur Einarsson eigandi Vél- taks hf. Véltak hf. var stofnað 1970 af Gubbjarti Einarssyni vél- stjóra og hefur fengist við margþætta starfsemi, s.s. skipaviðgerbir, nýsmíðar, vélaframleiðslu og innflutn- ing, en hin síöari ár hefur starfsemin beinst að því að sérhæfa fyrirtækið i oliu, olíu- vörum, olíuskiljum, smurol- íum, hráolíum, skiljun olíu- eims frá sveifarhúsi dísilvéla, skiljun vatns og olíu og fleira sem lýtur að olíumengun. Véltak hefur á boðstólum smurolíuskilvindur frá Glacier Metall sem er góbur og ódýr kostur við hreinsun á smurolíu. í dag eru starfsmenn fyrirtækisins tveir en það er til húsa að Hvaleyrar- braut 3 í Hafnarfirði. „Við höfum sett litlar smurolíuskilj- ur (5-15 ltr. á vél) í um 60 krókabáta í sumar. Þetta eitt getur leitt til helm- ingi lengri endingar á vél. Svona skilj- ur bjóðum við einnig í stærri báta og ailt upp í togara." Heilsa vélar og vélstjóra fara saman „Eitt af stóru vandamálunum gegn- um tíðina hefur verið slæmt andrúms- loft í vélarrúmum skipa. Olíumettabur eimur sem myndast í sveifarhúsi véla lekur út í vélarrúmið og fer um allt skip. Þessi eimur leggst á alla fleti, raf- búnaö, þiljur og fleira. Þessi eimur er mettaður brennisteinssamböndum sem vélstjórinn andar að sér með til- heyrandi magasjúkdómum, lystarleysi og höfuðverk," segir Gubbjartur sem þekkir slíkt af eigin raun. Þetta vandamál er leyst með AirSep- skiljunni sem tengd er við sveifarhúsið og Véltak hefur fengið einkaumbob fyrir. AirSep-skiljan er tengd við loft- inntak túrbínunnar og á skiljunni er síðan komiö fyrir loftsíu. í AirSep-skiljunni er enginn hreyfan- legur hlutur en hún sogar eiminn úr sveifarhúsinu gegnum slöngu sem er tengd við útöndun vélarinnar í skilj- una. AirSep skilur olíuna frá eimnum og rennur hún síðan aftur inn í sveifar- húsib en olíusnauður eimurinn fer inn á túrbínuna til vélar og brennur þar. Þannig tekur skiljan við útöndun vélarinnar, skilur olíuna frá og leiðir gasloftið inn á túrbínuna hreint tii endurbrennslu. Við þessa aðgerð myndast undir- þrýstingur (vakúm) í sveifarhúsi sem gerir að verkum aö minna álag er á öll- um pakkningum og pakkdósum jafn- framt minni smurolíueyðslu og sýru- myndun í olíu. Vélin eybir eftir þetta minni smurolíu, sýrumyndun í mótor minnkar og vélarslit verður minna. Þessi aðgerð eykur ennfremur líftíma túrbínunnar en sé olíueimurinn leidd- ur beint inn á túrbínuna skemmir þab hana að lokum. Víða um heim er bannað að leiða olíueim úr sveifarhúsi út í andrúms- loftið sakir mengunar. Þetta er þekkt bæði í Evrópu, Skandinavíu og Amer- íku þó engar slíkar reglur þekkist hér- lendis. Vélstjórinn hæstánægður og heilsubetri „AirSep hefur verið komið fyrir á þúsundum véla nýjum og gömlum, m.a. Caterpillar, Volvo, Cummins og mörgum fleiri, með frábærum árangri. Við höfum fengið svipaöa reynslu hér- lendis þar sem við höfum sett AirSep upp, t.d. í Kóp frá Grindavík. Vélin sem er af Caterpillar gerð | hafði áður háan sveifarhús- | þrýsting, hélt illa endapakk- | dósum og skapaöi svo mik- inn eim í vélarrúmi að til vandræða horfði. Nú er allt annað andrúms- loft þar, hvergi sést olíusmit og vélstjórinn er hæstánægb- ur og heilsubetri," sagði Guð- bjartur. „Þetta er uppfinning sem nýtur vaxandi vinsælda en hefur veriö á markaði í tvö ár. Erlendis er hægt að líkja viðtökunum vib sigurför sem þetta tæki hefur farið á markaði. Sú umræba um minni mengun, hreinna loft og betri heilsu sem verið hefur í gangi hefur ekki enn borist nibur í vélarrúm- in að neinu ráði. Við sjáum þetta sem fjárfestingu í betri heilsu, bæbi fyrir vélstjórann og áhöfnina og einnig í betri heilsu vélar- innar og þar með auknu öryggi skips- ins í heild. Við sjáum ekkert nema jákvæðar hliðar á AirSep-skiljunum sem forða mengun, spara smurolíu og gasolíu, minnka vélarslit, vélarrúm verður hreinna og vélstjóri andar að sér hreinu lofti. Það er löngu tímabært að menn hugi að því hvort vinnuum- hverfi vélstjóra sé nægilega heilnæmt. Mín reynsla er sú að það sé það ekki en heilsa manns er eitt þab dýr- mætasta sem hann á og enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur." O 16 ÆGIR DESEMBER 1994

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.