Ægir - 01.12.1994, Page 32
Rannsóknasjóði og Menningar- og framfarasjóði
Ludvik Storr.
Sjóslys af völdum ónógs stöðugleika
Samkvæmt skýrslum Rannsóknarnefndar sjóslysa
hafa á átta ára tímabili eða frá 1983 til 1991 (1985
ekki taliö með þar sem skýrsla var ekki fáanleg) 17
skip farist og meö þeim 18 menn af völdum ónógs
stöðugleika eða rangrar hleðslu. Ætla má að þessi
tala sé hærri þar sem tildrög slyss eru ókunn í all-
mörgum tilfellum. Það er athyglisvert að í nokkrum
tilfellum höfðu þessi skip aldrei verið stöðugleika-
mæld og jafnvel að skipi var róið með veiöibúnað
sem Siglingamálastofnun ríkisins hafði bannað
vegna þess að skipið uppfyllti ekki stöðugleikakröf-
ur. Þeir sem hafa komist lífs af eftir sjóslys af þessu
tagi telja yfirleitt að sein viðbrögð við uppkomnum
aðstæbum sé orsök slyss. Þegar orsök slyss er röng
hleðsla eða að leki kemur að bátnum líöur venju-
lega langur tími áður en menn gera sér grein fyrir
því að hættuástand hefur skapast. Ein algengasta
ástæða fyrir því að litlir bátar farast er röng hleðsla
eða að leki hefur komist að bátnum. Því miður er
þab alltof algengt að sjómenn séu meb stór kör á
þilfari og trassa ab láta aflann í lest. Einnig bila
flotrofar t.d. í vélarrúmi og sjór kemst í vél sem
þýðir að einungis er hægt ab nota handdælur og
stundum dugar þab ekki til og báturinn hálfsekkur
eba leggst á hliðina. □
Meira saltab en í fyrra
Samkvæmt nýjustu tölum frá Síidarútvegsnefnd
var í lok nóvember búið að salta í 107.079 tunnur
af síld. Þetta er 12% meira en saltað var á allri ver-
tíðinni í fyrra.
Feitur fiskur of mengaður fyrir
barnshafandi konur
Sænsk yfirvöld hafa varað barnshafandi konur við því að
borða feitan fisk sem veiddur er í Eystrasalti. Þetta á einkum
við um lax, lúðu og annan feitan fisk. Ástæðan er sú að magn
eiturefnanna PCB og díoxíns er svo hátt í fiskinum að talið er
að það geti skaðað fóstur á viðkvæmu stigi.
(Fiskaren nóv. 1994)
Véla- og skipaþjónustan
FRAMTAK HF
DRANGAHRAUN11 B
SÍMI 91-652556
FAX 91-652956
VECOM
Efnaframleiösla og tæknileg
þjónusta við skip og iðnað
Alhliða vélaviðgerðir - Rennismíði - Plötusmíði
■r»r»3 Service
■ 11 ~ > ■ Station
SJÓMENN - UTGERÐARMENN - FISKVERKENDUR
Munið! Allan fisk skal ísa allt árið.
Framleiðum: ísvélar með afköst frá 600 kg 24/t til 10 tonn 24/t og lausfrystitæki, margar stærðir.
Hönnum, seljum og setjum upp allar stærðir af kæli- og fiystikerfum og tækjum á sjó og landi.
Veitum ráðgjöf varðandi breytingar á kerfum vegna nýrra kælimiðla.
Allt á sama stað: Hönnun, sala, framleiðsla og þjónusta.
K
Wf
Kœling hf.
RÉTTARHÁLSI 2 • 130 REYKJAVÍK • SÍMI 689077 • FAX 676917
32 ÆGIR DESEMBER 1994