Ægir

Volume

Ægir - 01.12.1994, Page 36

Ægir - 01.12.1994, Page 36
Tafla 1. Kynþroskastig hrygnanna í % er eftir dýpi1) Úthafskarfi Djúpkarfi Kynþroskastig Kynþroskastig Dýpi í m III IV III IV <200 4,8 3,4 _ _ 200-300 10,5 24,9 0,1 _ 301-400 67,6 60 0,0 1,0 401-500 8,1 5,1 2,9 27,1 501-600 8,4 6,4 52,8 29,2 601-700 0,7 0,2 32,5 21,9 701-800 - - 10,9 14,6 >800 _ _ 0,8 6,3 'I Kynþroskastig: III = Karfi kominn að goti og gjótandi. IV = Nýgotinn. St. 390 39I 392 200 20I 202 203 230 Mynd 6: Lóðrétt hitadreifing á sniði milli 41°38’V og 32°20’V á 60°N (Bjarni Sæmundsson/Michael Sars 1994). fram og til baka í Grænlandshafi ár hvert. Meöan á goti stendur heldur úthafskarfinn sig dýpra en í ætisgöngunum. Samkvæmt íslenskum rannsóknum frá 1982 og 1983 virðist hann einkum gjóta í 300-400 m.d. í austanverðu Græn- landshafi. Þungi gots djúpkarfans er hins vegar nokkru dýpra eða í 500-700 m.d., einkum í 550-650 m.d. við Reykjaneshrygg (sjá töflu 1). Þrátt fyrir þennan dýpismun á megingoti fer ekki hjá því að báðir stofnamir blandist tölu- vert á þessum tíma. En eftir gotið hefur úthafskarfinn göngu sína til suðvesturs og grynnir á sér. Á þessum tíma, þ.e. yfir sumarmánuðina, heldur hann sig að mestu ofan 400 m.d. í 3-5° heitum sjó neðan við hitaskiptalagið sem er viðvarandi þarna á þessum tíma árs (mynd 6). Samkvæmt Mynd 7. Úthafskarfi. Dýpisdreifing úthafskarfans í Grænlandshafi í júni/júli 1994 samkvæmt bergmálsgildum bergmálsgildum er langmest um hann í 100-300 m.d. (mynd 7). Stofnmæling Eins og áður er getið heldur úthafskarfinn sig að lang- mestu leyti í efstu 350 metrunum yfir sumarið og haustið og er ekki saman við aðrar fisktegundir af svipaðri stærð. Vegna óvissu um aldur úthafskarfa er ekki unnt að beita hinni heföbundnu aldurs/afla aðferð (VPA) til að meta stofnstærðina. Þar sem hann heldur sig hins vegar tiltölu- lega ofarlega í sjónum af karfa að vera og stendur ekki dýpra á fyrrgreindum tíma en raun ber vitni var álitið að auð- veldasta og fljótlegasta aðferðin væri að meta stofnstærðina með bergmálsmælingum. Rússneskar rannsóknir á níunda áratugnum og íslenskar tilraunir 1991 sýndu fram á að stofnstærðarmat á úthafskarfa með bergmálsaðferöum var möguleg í júní-júlí. Tilraunir gerðar í apríl og maí sýndu að ekki var unnt að beita þessari aöferð með árangri á þeim árstíma. Hins vegar sýndu íslenskar rannsóknir, gerðar í september 1993, að unnt er að beita slíkri aðferð að hausti til. En þótt aðferðin sé nothæf þá er það í raun ómögulegt fyrir eitt skip að spanna hið mikla útbreiðslusvæði út- hafskarfans innan þeirra tímamarka sem þarf til þess að niðurstöður geti talist marktækar. Meðal annars þess vegna - og reyndar af ýmsum öðrum ástæðum - voru rússnesku mælingarnar sem gerðar voru á níunda áratugnum ekki taldar nægjanlega áreiðanlegar. íslenskur leiðangur 1991, Mynd 8. Heildarafli úthafskarfa eftir árum frá upphafi veida. Ljósari súlurnar sýna veiöi íslendinga. 60 40 36 ÆGIR DESEMBER 1994

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.