Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1995, Blaðsíða 28

Ægir - 01.10.1995, Blaðsíða 28
tap tvö árin á undan. Tvisvar sinnum hef- ur veriö greiddur aröur til hluthafa. Hundraö hluthafar eru í Fiskmarkaöi Hafnarfjaröar. Stærstir þeirra eru Sjóla- stööin, Buröarás, Stálskip, Lýsi hf. og Kassageröin, en saman eiga þessir stærstu hluthafar tæp 40%. Grétar Friöriksson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Hafn- arfjarðar, sagöi að fiskmarkaöir ættu í vök að verjast eftir því sem mörkuðum fjölgaði, afli minnk- aði og frystitogurum fjölgaði en isfisktogurum og bátum fækkaði. Óttast úreldingu „Sú tilhneiging aö smæni út- gerðaraöilum fækkar og smábát- um fækkar óðfluga er stærsta ógnunin viö tilveru okkar því þetta eru einkum þeir aðilar sem leggja upp hjá okkur. Stóru út- gerðarfyrirtækin nota ekki mark- aðina nema aö litlu leyti. Allir fiskmarkaðir á íslandi seldu um 100 þúsund tonn í fyrra og það sýnir betur en margt annaö að verðið sem myndast hér er raunveru- leiki og full ástæða til að taka mark á því, hvað sem andmælendur segja. Ég er bjartsýnn á framtíöina en við erum í harðri samkeppni við sjófrystingu og bein viðskipti með tonn á móti tonni sem ég held að við getum alveg staðist. Við þurfum að þrauka þar til þorskafli fer að aukast á ný. Það sem ég óttast er að eftir fimm ár verði búið að úrelda allan þann flota sem sér mörkuðunum fyrir hráefni." Reiknistofa fiskmarkaðanna er tölvu- fyrirtæki sem rekið er sameiginlega af þeim hópi fiskmarkaða sem ráða yfir rúmlega 42% markaöarins í heild. Til skamms tíma voru 11 fiskmarkaðir í þeirri blokk sem halda sameiginleg uppboð daglega kl. 11:00 á sumrin en kl. 15:00 á veturna. Talan 11 er breytingum háð þar sem framtíð Fiskmarkaðar ísafjarðar er ó- ljós þegar þetta er skrifað en viðskiptin sem áður fóru fram þar munu áfram til- heyra þessari blokk markaða. Reiknistofan sér um alla innheimtu, greiðir öllum seljendum, greiðir öll opin- ber gjöld fyrir alla markaðina og sér um allt uppgjör fyrir alla markaðina. Upp- gjörsaðferðir þeirra eru mun meira sam- eiginlegar en tíðkast hjá Islandsmarkaði. Fyrir þessa þjónustu greiða fiskmarkaðir, sem eru aðilar að Reiknistofu fiskmarkað- anna, 0,65% af ársveltu til hennar. Valbjörn og Fiskanes eiga 34% Fiskmarkaður Suðurnesja er langstærst- ur þeirra markaða sem eru aðilar að Reiknistofu fiskmarkaðanna og hafði 62% viðskiptanna á síðasta ári en 60% til 1. sept. 1995. Næstir honum að stærð koma síðan markaöurinn í Ólafsvík með 11%, Isafjörður með 9%, Hornafjörður með 10% og Dalvík með 5%. Hluthafar í Fiskmarkaði Suðurnesja eru tæplega 90 og stærstu einstöku eigendur eru Valbjörn hf. í Sandgerði, sem á 18%, og Fiskanes í Grindavík sem á 16%. Bæði þessi fyrirtæki eru í útgerð og fiskvinnslu. Gjaldskráin hjá Reiknistofu fiskmark- aða er eðlilega með líkum hætti og hjá íslandsmarkaði og algengast að markað- ir taki 4% í þóknun. Þar fyrir utan er hverjum markaði innan Reiknistofu fiskmarkaðanna í sjálfsvald sett hvernig gjaldtöku er háttað, en Fiskmarkaður Suðurnesja tekur t.d. afgreiðslugjald af seljendum sem er á bilinu frá 20 aurum upp í 1 krónu á kíló. Kaupendur greiða að jafnaði krónu á kíló í afgreiðslugjald. Vigtargjald er 16 aurar en það rennur til hafnarinnar en Reiknistofa fiskmarkab- anna sér um ab innheimta það og greiða út. Vigtargjald er ekki innheimt í Reykja- vík og Hafnarfirði. Auðveldara að svindla í föstum viðskiptum „Þetta er aukaskattur á okkur hér á Suðurnesjum sem ríku hafnirnar sleppa vib að innheimta," sagði Ólaf- ur Þór Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkabs Sub- urnesja, í samtali við Ægi. Hann sagbi að eftir erfiðan tíma hefði orðið góður hagn- abur af rekstri Fiskmarkaðs Suðurnesja á síðasta ári. Hann sagðist í heiidina litið vera bjartsýnn á framtíð fiskmark- aða. „Vib erum í harðri samkeppni við föst viðskipti. Við erum ekki bara að keppa um verð heldur við kvótakerfið og af- leiðingar þess því það er miklu aubveldara ab fela þorsk og breiða yfir hann í föstum vib- skiptum en á markaði. Ef markabslögmálin fengju að rába þá væri auðvitað allur fiskur seldur á mark- aöi. Markaðir eiga eftir að stækka. Ég er ekki nokkrum vafa um það. Vib aukum hlutdeild okkar þrátt fyrir samdrátt í afla. Umræðan nú er um að fá allan fisk á markað og það væri það besta sem gerðist. Þab sem þarf aö gera er aö taka ráð- stöfunarrétt aflans af þeim sem eiga afla- heimildirnar. Útgerðarmenn og sjómenn eru þeir bestu til að sækja fiskinn en við eigum síðan að fá tækifæri til þess að gera það besta fyrir þjóöarbúið úr aflan- um. Þab er ekki sjálfgefið að þab verð sem stóru fyrirtækin fá fyrir afla sem þau veiða sjálf sé það besta fyrir þjóöarbúiö. Ef þeir eru að gera jafnvel og betur en hinir sem versla á markaðnum þá ættu þeir ekki að óttast samkeppnina. Þaö segja sumir ab markaðirnir sé afætur og sjá ofsjónum yfir þessum fáu prósentum sem við tökum. Ég fullyrði að verðmætaaukningin sem fiskmarkaðir hafa leitt af sér er margfalt meiri en svo að taki því að minnast á þjónustugjöld okkar," sagbi Ólafur Þór ab lokum. □ 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 Samanburður á meðalverði þorsks á mörkuðum og í beinum viðskiptum 28 ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.