Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1995, Blaðsíða 50

Ægir - 01.10.1995, Blaðsíða 50
toggálgar en yfir frambrún skutrennu er pokamastur sem gengur niður í skorsteinshúsin. Toggálgapallur tengist við pokamastur. Vélabúnaður Framdrifts- og orkuframleiðslukerfi: Aðalvél skipsins er frá Grená Motorfabrikk, sex strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkælingu. Vélin tengist niöurfærslugír og skiptiskrúfu- búnaði frá Grená. Tæknilegar upplýsingar (aðalvél með skrúfubúnaði): Gerb vélar 6FR-24TK Afköst 596 KW (810 hö)* 750 sn/mín 2.14:1 Blaöafjöldi skrúfu 3 1750 mm 351 sn/mín Fastur * Skilgreind afköst eru öxulafl. Við fremra aflúttak aðalvélar er Hytek deiligír sem við tengj- ast tvær Brattvaag G18 vökvaþrýstidælur fyrir vindur, sem skila 17801/mín hvor við 375 sn/mín og 30 kp/cm2 þrýsting. í skipinu eru tvær Volvo Penta hjálparvélasamstæöur. Önn- ur er af gerð TAMD 122 A, 270 KW (367 hö) við 1500 sn/mín og knýr riöstraumsrafal frá Stamford, 202 KW (253 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz. Hin er af gerð TMD 100 AK, 118 KW (161 hö) við 1500 sn/mín og knýr Stamford riðstraumsrafal af gerð MC 434A, 104 KW (130 KVA), 3 x 380 V, 50 Hz. Annar vélbúnaður: Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Scan, gerð MT 1600, snúningsvægi 1600 kpm. í skipinu er ein Westfalia skilvinda af gerð ÖTA-2-00-066 fyrir brennsluolíu. Ræsiloftþjappa er frá Espolin af gerö H3S, afköst 11.1 m3/klst við 30 bar þrýsting, en auk þess er hand- knúin varaloftþjappa. Fyrir vélarúm og loftnotkun véla er einn rafdrifinn blásari. Rafkerfi skipsins er 380 V riöstraumur fyrir mótora og stærri notendur og 220 V riðstraumur til ljósa og almennra nota í íbúðum. í skipinu er 380 V landtenging. Tankmælikerfi er frá Peilo Teknikk. í skipinu er ferskvatns- framleiðslutæki frá Atlas af gerö AFGUl, afköst 2.5 tonn á sól- arhring. Fyrir vélarúm er Halon 1301 slökkvikerfi og KEW þvottakerfi fyrir vinnslurými. íbúðir eru hitaðar upp með miðstöðvarofnum (miðstöðv- arketill) og loftræstar með rafdrifnum blásurum. Tvö vatns- þrýstikerfi eru í skipinu (sjó- og ferskvatnskerfi). Fyrir vökvaknúinn vindubúnað (lágþrýstikerfi) eru áður- nefndar véldrifnar vökvaþrýstidælur, drifnar af aðalvél um deiligír, og auk þess ein rafdrifin G 5 dæla fyrir átaksjöfnunar- búnað og til vara. Fyrir háþrýstivindur og krana er rafdrifin vökvaþrýstidæla og auk þess er sérkerfi fyrir búnað á vinnslu- þilfari með tveimur dælum. Fyrir frystitæki og frystilest eru þrjár kæliþjöppur (stimpil- þjöppur) frá Sabroe, tvær af gerð T3MC 108S, knúnar af 41 KW Schorch rafmótorum, og ein af gerð TCMD 18, knúin af 19 KW ASEA rafmótor, kælimiðill Freon 22. íbúðir íbúðir eru samtals fyrir 13 menn í tveimur 3ja manna, tveim- ur 2ja manna og þremur eins manns klefum. Á neðra þilfari em fremst tveir þriggja manna klefar og tveir tveggja manna klefar. Þar fyrir aftan í b.b.-síðu er eins manns klefi, snyrting með sturtu og salemi, borðsalur, matvælageymsla, stigagangur, eldhús og aftast hlífðarfatageymsla ásamt þurrk- klefa, salernisklefa o.fl. Á efra þilfari eru tveir eins manns klefar, snyrting með salerni og sturtu og stigagangar. Vinnuþilfar (fiskvinnslurými) Móttaka: Framan við skutrennu er vökvaknúin fiskilúga sem veitir aðgang að fiskmóttöku, um 7 m3, aftast á vinnuþilfari. í efri brún skutrennu er vökvaknúin skutrennuloka. Fiskmóttöku er skipt í tvo geyma og er hleypt úr þeim um tvær vökvaknúnar lúgur á framþili. Vinnslubúnaður: Skipið er búið rækjuvinnslubúnaði og er búnaður til flokkunar, suðu, pökkunar og frystingar. Flokkunar- vél er frá Carnitech af gerð BSL, afköst 750-1000 kg/klst, og rækjusjóðari (olíukyntur) frá Kronborg. Tölvuvogir em frá Póls, þrjár af gerðinni S-55. Frystibúnaður: í skipinu eru eftirtalin frystitæki: Tveir láréttir Jackstone plötufrystar, 10 og 13 stöðva; og einn lausfrystir. Fiskilest (frystilest) Lestarými er um 340 m3 og er lestin búin fyrir frystingu. Lest- in er einangruð með polyurethan og klædd með plasthúðuðum krossviði. Kæling er með kælileiðslum í lofti lestar. í lest er ál- uppstilling. Framantil á lest er eitt lestarop með lúguhlera og til- svarandi iosunarlúga á efra þilfari, framan við yfirbyggingu. Fyrir affermingu er losunarkrani, b.b.-megin á efra þilfari framan við yfirbyggingu. Vindubúnaöur, iosunarbúnaður Almennt: Vindubúnaður skipsins er vökvaknúinn (lágþrýsti- kerfi) frá A/S Hydraulik Brattvaag og er um að ræða tvær tog- vindur, tvær grandaravindur og akkerisvindu. Auk þess er skipið búið fjómm háþrýstiknúnum hjálparvindum, Pullmaster smá- vindum og losunarkrana frá HMF. Togvindur: Á efra þilfari, aftan við yfirbyggingu, em tvær tog- vindur (splittvindur) af gerð DIA10, hvor búin einni tromlu og knúin af einum vökvaþrýstimótor. Tæknilegar stærðir (hvor vinda): Tromlumál .. 510 mmo x 1800 mmo x 464 mm Víramagn á tromlu .. 1830 m af 22 mmo vír Togátak á miðja tromiu .. 4.6 tonn Dráttarhraði á miðja tromiu.... .. 80m/mín Vökvaþrýstimótor .. MA10 50 ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.