Ægir - 01.10.1995, Page 38
Litur er dökkur á bol en silfraður á
hliðum.
Geislar B: 9-11, R: 13-15, hryggjarliö-
ir: 29-30, gelgjur: 6 og tálknbogatindar
á fyrsta boga eru (6)7(8).
Heimkynni stutta silfurfisks eru hinir
hlýrri og tempruðu hlutar Atlantshafs
einkum á milli 45°N og 30°S. Hann hef-
ur þó fundist allt norbur á 51-52”N (SV
íriands) og 45°V. í apríl eða maí sl.
veiddist 6,3 cm langur fiskur þessarar
tegundar í flotvörpu Sléttaness ÍS um
200 sjómílur SV af Reykjanesi og mun
það vera nyrsti fundarstaður tegundar-
innar til þessa.
Lífshœttir: Úthafs- og miðsævisdjúp-
fiskur sem fundist hefur á 300-1100
metra dýpi. Fæða er ýmis smákrabbadýr
(krabbaflær, ljósáta), smáfiskar o.fl.
Athugasemd: Fiskur þessi barst okkur
á Hafrannsóknastofnun í hendur þurrk-
aður og því var erfitt að greina hann frá
öðrum fiski sömu ættkvíslar, þ.e.
skakka silfurfiski, S. pseudobscura
Baird, 1974, en sá fiskur er mjög svipaö-
ur í útliti og hefur m.a. fundist við
Grænland.
Aðrar fisktegundir af silfurfiskaætt sem
fundist hafa á íslandsmiðum eru stóri
silfurfiskur, Argyropelecus gigas, suð-
ræni silfurfiskur, /1. hemigymnus, nor-
ræni silfurfiskur, A. olfersi, norræna
gulldepla, Maurolicus muelleri, og
deplasilfurfiskur, Valenciennellus trip-
unctulatus.
Ætt: Kolskeggjaætt, MF.I.ANOSTOMIIDAE
Faxaskeggur, Flagellostomias boureei
(Zugmayer, 1913)
Stœrð: Getur náð meira en 32 cm
lengd.
Lýsing: Langvaxinn og grannvaxinn
fiskur. Haus er ávalur fyrir endann og
skoltar eru jafnlangir fram (jafnskolta).
Niður úr neðra skolti gengur langur
hökuþráður sem er um helmingur til
þrír fjórðu af lengd fisksins að sporði
(sk. ,,standard"-lengd). Á enda höku-
þráðar er lítil kúla og margir smáir
þræðir. Kjaftur er stór. Á skoltum eru
vígalegar tennur og skagar fremsta
tönn neðri skolts upp fyrir efri skolt og
næstfremsta tönn efri skolts nær nið-
ur fyrir neðri skolt. Augu eru allstór og
aftan þeirra er smátt, kringlótt ljósfæri
sem er um fjórðungur af þvermáli
auga eða minna. Kviðlæg röð ljósfæra
nær frá haus aftur að sporði. Fjöldi
þeirra frá rótum eyrugga að kviðugga-
rótum er 31-34. Önnur röð ljósfæra
samsíða nær að raufarugga. Engin ljós-
færi eru framan við augu né neðan við
þau. Bak- og raufaruggar eru mjög aft-
urstæðir og andspænis hvor öðrum.
Raufaruggi er þó mun stærri og nær
lengra bæði fram og aftur. Eyruggar
eru lágstæðir og fremsti geisli þeirra er
laus við uggann og mjög langur og
með smáa kúlu og þráð á enda. Geislar
í eyrugga eru 1+8-11. Kvibuggar eru
lágstæðir og afturstæðir. Sporbur er
smár og sjúpsýldur.
Litur er svartur eba mjög dökkleitur.
Heimkynni: Faxaskeggur hefur fund-
ist í öllum heimshöfum. í Atlantshafi
hefur hann fundist frá íslandsmiðum
suður til 40°S. Hans hefur þó ekki orð-
ið vart í Norðursjó né á milli íslands
og Noregs. í vestanverðu Atlantshafi
finnst hann norðan 15°N og sunnan
28°S. í apríl á þessu ári veiddist 18 cm
(mældur að sporði) faxaskeggur í botn-
vörpu Þuríðar Halldórsdóttur GK á 421
m dýpi í Faxadjúpi (63°17'N og
25°28'V).
Lífshœttir: Miösævis- og djúpfiskur
sem heldur sig oftast á meira en 500
metra dýpi á daginn. Eftir tönnum að
dæma er þetta meiriháttar ránfiskur.
Aðrar fisktegundir af kolskeggjaætt
sem finnast á íslandsmiðum eru
klumbuskeggur, Chirostomias pliopter-
us, þráöskeggur, Melanostomias
bartonbeani, og kolskeggur, Trigono-
lampa miriceps.
Ætt: Rauöskinnaætt, barbourisiidae
Rauðskinni, Barbourisia rufa
Parr, 1945
Stcerð: 45 cm.
Lýsing: Nokkuð langvaxinn, þéttvax-
inn og straumlínulaga fiskur með stór-
an endastæðan kjaft. Skoltar ná langt
aftur fyrir smá augu. Á skoltum eru
mjög smáar og þéttstæðar tennur.
Tennur á plógbeini eru einnig mjög
smáar en á gómbeini eru engar tennur.
Bak- og raufaruggar eru allstórir, aftar-
lega og andspænis hvor öðrum.
Bakuggi er lengri en raufaruggi og nær
lengra fram. Eyr- og kviðuggar eru frek-
ar smáir. Kviðuggar eru um miöjan fisk.
Sporður er stór og spyrðustæöi er sterk-
legt. Engir gaddar eru í uggum. Hreistur
er smátt og fíngaddað og nær fram á
haus. Rák er mjög greinileg og með ein-
faldri holuröð og er fjöldi hola frá haus
aftur að sporðblöðku 28-33. Engin ljós-
færi eru sjáanleg.
Litur er rauður eða appelsínugulur
38 ÆGIR