Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 4

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 4
rannsóknir og í hlutarins eðli liggur að ætlast er til þess að þeir birti niðurstöður sínar, því varla eiga þeir einir að sitja að þeim. Hins vegar eru það því betur fleiri lögfræðingar en prófessorar og kennarar sem leggja stund á fræðistörf og ritstörf á sviði lögfræðinnar. Hér má heldur ekki gleyma kandídatsritgerðum laganema, sem margar hverjar eru ágæt og gagnleg rit. Verður ekki betur séð en þrátt fyrir það að lögfræðingar séu ekki stór hópur að tölunni til að í honum séu þó nokkrir ágætir fræðimenn. Meinið er hins vegar það að erfitt er að útvega fé til fræðistarfa og útgáfu því að markaðurinn fyrir lögfræðirit er afar smár og því nánast í öllum tilfellum borin von að sala á lögfræðibókum standi undir eðlilegum kostnaði við útgáfuna. Er þá sérstaklega haft í huga að höfundar fái bærileg laun fyrir vinnu sína, því að varla er hægt að gera ráð fyrir að menn skrifi mikið til lengdar án þess að fá greiðslu fyrir. Ef lögfræðirit selst í eitt þúsund eintökum á einhverju árabili þykir það mjög góður árangur. Það er deginum ljósara að með einhverjum hætti þarf að útvega meira fé til rann- sóknarstarfa og skrifta til þess að styrkja fræðilegan bakhjarl íslenskrar lög- fræði. Ef til vill gætum við þá komist þangað með tærnar sem frændur okkar á hinum Norðurlöndunum hafa hælana. Það er ekki sérstaklega metnaðarfullt markmið en ef til vill raunhæft. Hvað er svo til ráða er spurning sem sá er þetta ritar kann því miður ekki svör við, en er þó varpað fram öðrum snjallari til svara. Ritstjórn þessa tímarits hefur löngum verið áhyggjuefni og nánast feimnismál að í því skuli ekki jafnharðan vera getið þeirra lögfræðirita sem gefin eru út hérlendis og jafnvel skrifaðir um þau ritdómar. Má þetta teljast til töluverðs vansa. Aðalástæða þessa er sú, svo til afsakana sé gripið, að reynst hefur nánast útilokað að fá menn til að skrifa ritdóma. Hins vegar er nú í þessu hefti reynt að ráða hér á nokkra bót. Ungur og vaskur lögfræðingur tók að sér að beiðni ritstjómar að skrifa grein þar sem getið skyldi og gerð grein fyrir þeim lögfræðiritum sem út hafa komið á ámnum 1990-1996. Á hann miklar þakkir skildar fyrir vikið. I inngangi greinarinnar kemur fram að í henni er getið um 90 rit sem gefin vom út á umræddu tímabili og vel má vera að þau hafi verið eitthvað fleiri. Er því um að ræða nær 13 rit að meðaltali sem gefin hafa verið út á ári hverju. Rit þessi em vissulega misjöfn að stærð og eflaust að gæðum, þótt ekkert mat sé á það lagt í greininni sem ekki var ætlast til. Meðal ritanna er að finna Grágás, Lagasafnið og Lögfræðingatal, tvö afmælisrit, skýrslur og greinasafn. Nafn- greindir höfundar em 31 en þeir eru reyndar ekki allir lögfræðingar. Það er hið besta mál eins og sagt er, því að yfirleitt er fróðlegt að sjá hverja sýn þeir hafa á lögfræðileg efni sem ekki hafa lagt sérstaka stund á lögfræði. Svo sem búast mátti við eiga prófessorar við lagadeild háskólans stóran hlut af því sem gefið hefur verið út. Er ekki fjarri því að hver þeirra gefi út að meðaltali eitt rit á ári á þessu árabili og reyndar einn þeirra einu riti betur. Þetta eru að sjálfsögðu einungis tölulegir útreikningar og segja ef til vill ekki mikla sögu. Tölumar segja þó það að ekki verður betur séð en þessir prófessorar 144
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.