Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 70
Jón Finnbjörnsson. Sjóréttur - námsefni í sjórétti fyrir 1. og 2. stig Stýrimanna-
skóla. 1992. 126 bls. Verð: 855 kr.
í bókinni Sjóréttur eftir Jón Finnbjörnsson dómarafulltrúa er fjallað um
nokkur atriði er tengjast réttarsviðinu, en ritið er einkum ætlað nemendum á 1.
og 2. stigi stýrimannaskóla. Ritið skiptist í 12 kafla þar sem fjallað er um skip,
skráningu og eftirlit með skipum, rannsóknir sjóslysa, sjómenn og skiprúms-
samninga, skipstjóra, lögskráningu sjómanna, skaðabótaábyrgð útgerðarmanns,
árekstur skipa, björgun, sameiginlegt sjótjón og sjóvátryggingar. I viðauka er að
finna útdrátt úr helstu lagabálkum sem réttarsviðinu tengjast.
Lára V. Júlíusdóttir. Kennslubók í verslunarrétti. Höf. gaf út. 1993. 232 bls. Verð:
2.350 kr.
Kennslubók í verslunarrétti var gefin út í fimmta sinn árið 1993. Bókin hefur
einkum verið notuð við lögfræðikennslu í framhaldsskólum. Hún skiptist í sex
hluta og átján kafla. í fyrsta hluta er fjallað um grundvallaratriði hins íslenska
réttarkerfis, í öðrum hluta er fjallað um samninga, í þriðja hluta er fjallað um
félög í atvinnurekstri, í fjórða hluta er fjallað um fasteignakaup, í fimmta hluta
er fjallað um ýmsar réttarreglur viðskiptalífsins og í sjötta hluta er vikið að
öðrum réttarreglum, á sviði skaðabótaréttar, sifjaréttar og réttarfars. Aftan við
hvem kafla er að finna spurningar varðandi efni kaflans, sem eykur gildi
bókarinnar sem kennslurits.
Lögfrœðingatal 1736-1993. Iðunn. 1993. 3 bindi. 1760 bls. Verð: 28.800 kr.
Fyrstu þrjú bindin af Lögfræðingatali 1736-1993 komu út árið 1993. í fyrsta
bindi er að finna ritgerð eftir Agnar Kl. Jónsson um laganám íslenskra
lögfræðinga 1736-1975 og ritgerðir eftir Sigurð Líndal um nám og menntun
íslenskra lögfræðinga 1975-1993, málflytjendur og lögmenn á íslandi og yfirlit
yfir þær stofnanir og embætti sem nefnd eru í æviskrám. Síðan fylgja æviskrár
1488 lögfræðinga og ná þær yfir þrjú bindi. I hverju bindi er að finna skrá yfir
helstu skammstafanir. I fjórða bindi, sem ekki hefur verið gefið út þegar þetta
er ritað um mitt ár 1997, verður að finna kafla um erlenda lögfræðinga af
íslenskum uppruna. Þá verður þar að finna heimilda- og tilvísanaskrá,
umfjöllun um nokkrar lögfræðingaættir og skrá yfir lögfræðinga í tímaröð
miðað við prófdag. í lokakafla ritsins verður að finna umfangsmikla nafnaskrá.
Páll Sigurðsson. Lagaþœttir - Greinar af ýmsum réttarsviðum. Háskólaútgáfan.
1993. 381 bls. Verð: 5.170 kr.
Páll Sigurðsson. Lagaþœttir II - Greinar af ýmsum réttarsviðum. Háskólaútgáfan.
1993. 468 bls. Verð: 5.170 kr.
Páll Sigurðsson. Lagaþœttir III - Greinar afýmsum réttarsviðum. Háskólaútgáfan.
1994. 430 bls. Verð: 5.170 kr.
210