Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 57
Jónatan Þórmundsson. Fjármuna og efnahagsbrot - 1. hluti. Fjölrit. 1995. 52 bls.
Ritið Fjármuna og efnahagsbrot segir höfundur í formála að sé fyrsti hluti af
þremur um efnið, en ritið er ætlað jafnt starfandi lögfræðingum sem nemendum
við lagadeild HÍ. I bókinni er í inngangi, fyrsta þætti, fjallað um refsivemd
fjárhagslegra verðmæta, hugtökin fjármunabrot, hagnaðarbrot og auðgunarbrot
og loks efnahagsbrot. í öðmm þætti er fjallað um einkenni og flokkun
auðgunarbrota og í þriðja og síðasta þætti er fjallað um einkenni og flokkun
efnahagsbrota.
2.7 Réttarfar
Markús Sigurbjömsson. Handbók - Aðför, kyrrsetning, lögbann o.fl. Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið. 1992. 227 bls. Verð: 2.280 kr.
Markús Sigurbjörnsson. Handbók - Gjaldþrotaskipti o.fl. Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið. 1992. 274 bls. Verð: 2.280 kr.
Markús Sigurbjörnsson. Handbók - Nauðungarsala o.fl. Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið. 1992. 202 bls. Verð: 2.280 kr.
Markús Sigurbjörnsson. Handbók - Skipti á dánarbúum o.fl. Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið. 1992. 246 bls. Verð: 2.280 kr.
Svala Ólafsdóttir. Handbók - Meðferð opinberra mála. Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið. 1992. 405 bls. Verð: 2.280 kr.
í tilefni af aðskilnaði dómsvalds og umboðsvalds í héraði gaf dóms- og
kirkjumálaráðuneytið út fimm handbækur á sviði réttarfars. Bækurnar fjalla um
réttarfarslöggjöf hver á sínu sviði, og er í þeim að finna ítarlegar leiðbeiningar
um meðferð þeirra mála sem hver og einn lagabálkur fjallar um. Ekki er ástæða
til að reifa efni bókanna frekar. I hverri bók er að finna viðeigandi sýnishorn og
skrár. Samhliða útgáfunni vom umræddir lagabálkar ásamt greinargerð þeirri
sem fylgdi hverju og einu fmmvarpi gefnir út í sérstökum bókum. Auk þeirra
laga sem fjallað er um í framangreindum handbókum voru lög um meðferð
einkamála og aðskilnaðarlögin gefin út með þessum hætti.
Markús Sigurbjörnsson. Einkamálaréttarfar. Fjölrit. 1993. 303 bls.
Ritið var gefið út sem handrit til kennslu við lagadeild HÍ. Það skiptist í 15
kafla þar sem fjallað er ítarlega í fyrstu 11 köflunum um fræðigreinina réttar-
far, nokkur hugtök í almennu einkamálaréttarfari, meginreglur einkamála-
réttarfars, hlutverk dómstóla og skipan þeirra, héraðsdómara, aðild að
einkamáli, fyrirsvar fyrir málsaðila, málflutningsumboð og málsóknarumboð,
sakarefnið, lögsögu dómstóls til að leysa úr máli og stefnu. í síðustu fjórum
köflum bókarinnar er fjallað í stuttu máli um almenna málsmeðferð í héraði,
afbrigðilega málsmeðferð, sönnunarfærslu fyrir dómi og dómsúrlausnir í
197