Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 53
einkahlutafélög í samræmi við nýlega löggjöf á þessu sviði. Bókin skiptist í 30
kafla og er þar m.a. fjallað um sögulega þróun hlutafélagalöggjafar, áhrif
Evrópuréttar á hlutafélagalöggjöf, megineinkenni hlutafélagaformsins, stofnun
hlutafélags, greiðslu hlutafjár, hlutabréf, hækkun og lækkun hlutafjár, félags-
stjóm, hluthafafundi, endurskoðun, ársreikninga og ársskýrslu stjórnar, sjóði og
ráðstöfun þeirra, félagsslit, samruna, breytingu úr einu hlutafélagsformi í annað
og skiptingu hlutafélaga, skaðabætur, erlend félög og útibú þeirra, skráningu,
þvingunarúrræði og refsingar. í fimm srðustu köflum bókarinnar er að finna
heimilda- og atriðisorðaskrá, laga- og dómaskrá og loks stutt yfirlit á ensku yfir
efni bókarinnar.
2.5 Fjármuna- og kröfuréttur
Páll Hreinsson. Dómar í víxilmálum. Bókaútgáfa Orators. 1991. 231 bls. Verð: 3.875
kr.
I bók Páls Hreinssonar, aðstoðarmanns umboðsmanns Alþingis og stunda-
kennara við lagadeild Háskóla Islands, eru reifaðir dómar í víxilmálum. Þar er
jafnt að finna dóma sem varða efnisreglur víxilréttarins, sem og réttarfarsreglur
víxilmálaréttarfarsins. í ritinu eru flest allir þeir dómar sem gengið hafa í
víxilmálum í Hæstarétti fram til áramóta 1989/1990. Þá em í ritinu nokkrir
valdir dómar bæjarþings Reykjavíkur og Landsyfirréttar. Efnisskipan er með
þeim hætti að dómum er raðað í tímaröð og gefin númer sem vísað er til í
ítarlegum og vönduðum skrám ritsins, þ.e. mála- dóma- laga- og atriðis-
orðaskrá.
Páll Sigurðsson. Verksamningar - Meginreglur íslensks verktakaréttar. Bókaútgáfa
Orators. 1991. 381 bls. Verð: 5.585 kr.
I formála bókarinnar segir höfundur, Páll Sigurðsson prófessor, ritinu ætlað
að vera fræðileg handbók í verktakarétti. Bókin skiptist í fimm hluta og 26
kafla, og er í fyrsta hluta tjallað um réttarheimildir á réttarsviðinu, hugtakið
verksamning, helstu tegundir verksamninga, gerð þeirra, útboð og túlkun
verksamninga. í öðmm hluta er fjallað um helstu skyldur verktaka og verk-
kaupa, eindaga og efndatíma verksamninga og áhættuskipti milli aðila. í þriðja
hluta er fjallað um vanefndir verksamninga og réttaráhrif þeirra, skiladrátt á
verki, galla á verki, vanheimild verktaka yfir efni, brottfall vanefndaheimilda
verkkaupa, greiðsludrátt á verkkaupi, fjárþrot og viðtökudrátt verkkaupa. í
fjórða hluta er fjallað um réttarstöðu við andlát, fjárræðissviptingu, greiðslu-
stöðvun eða gjaldþrot aðila, umboð og ábyrgð tæknilegra ráðgjafa, lausn
ágreiningsmála og lagaskilareglur í verktakarétti. í fimmta hluta er fjallað um
þörf á réttarbótum auk þess sem þar er að finna heimildaskrá, dómaskrá,
lagaskrá, staðlaskrá og atriðisorðaskrá.
193