Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 64
tilfallandi tekjur, eignatekjur, eignahagnað, tap og aðrar tekjur.
I Skattarétti 2 er fjallað í fjórða þætti um atvinnurekstrartekjur, m.a. tekjur,
frádrátt, vörulager, fyrningu, fjárfestingarsjóð og varasjóðstillag.
I Skattarétti 3 er fjallað í fimmta þætti um álagningu tekjuskatts, fjölskyldu-
skattlagningu og atvinnurekstrarskattlagningu, og í sjötta þætti er fjallað um
alþjóðlegan skattarétt, alþjóðlega skattlagningu, afmörkun á skattlagningar-
valdi ríksins, takmarkaða skattskyldu, takmarkanir á tvísköttun samkvæmt
íslenskum lögum og tvísköttunarsamninga.
í Skattarétti 4 er fjallað í sjöunda þætti um skattyfirvöld og innheimtumenn
skatta, í áttunda þætti er fjallað urn breytingar á skattframtölum og endur-
ákvörðun á sköttum, kæru og áfrýjun skattaákvörðunar og réttarheimildir í
skattarétti og túlkun þeirra við skattlagningu. í níunda þætti er fjallað um
eignarskattlagningu, skattskylda aðila, ákvörðun eignarskattsstofns, greiðslu og
innheimtu eignarskatts, sérstakan eignarskatt o.fl., og loks er í tíunda þætti
fjallað um greiðslu og innheimtu tekjuskatta, þar sem m.a. er komið inn á
ábyrgð á skattskuldum, innheimtu vangreiddra skatta, brottfall skattskulda og
ágreining vegna innheimtu skatta. í eftirmála síðustu bókarinnar kemur fram sú
hugmynd höfundar að bækurnar verði síðar gefnar út í tveimur bindum, þar sem
í því fyrra verði fjallað um tekju- og eignarskattlagningu einstaklinga svo og
skattframkvæmd almennt séð, en hinu síðara um tekju- og eignarskattlagningu
fyrirtækja. Boðið er að ítarlegar skrár muni fylgja ritunum í þeirri mynd.
2.13 Stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttur
Gunnar G. Schram. Dómar úr stjórnskipunarrétti. Bókaútgáfa Orators. 1991. 248
bls. Verð: 3.305 kr.
í bókinni er að finna ágrip flestra þeirra dóma Landsyfirréttar og Hæstaréttar
sem varða stjórnarskrá Islands. Tekur hún yfir tímabilið 1877 til og með 1990.
Dómarnir eru raktir undir hlutaðeigandi stjórnarskrárgrein með tilvísun til
annarra greina þar sem það á við. I bókarlok er að finna skrá yfir dóma
samkvæmt greinum stjórnarskrárinnar og aðra skrá yfir dóma í aldursröð, með
ágripsnúmerum bókarinnar. Auk þess fylgir ítarleg lagaskrá.
Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar. Málflutningsskrifstofa Ragnar Aðalsteinsson
hrl. o.fl. 1992. 132 bls. Verð: 1.285 kr.
í ritinu Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar eru birtir ýmsir mannréttinda-
sáttmálar sem ísland á aðild að. Sáttmálarnir eru Mannréttindayfirlýsing Sam-
einuðu þjóðanna, Mannréttindasáttmáli Evrópu ásamt viðbótarsamningum og
viðaukum, Félagsmálasáttmáli Evrópu ásamt viðauka, Alþjóðasamningur um
borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, Samningur um afnám allrar mismununar
gagnvart konum og Samningur um réttindi barna.
204