Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 45
1. INNGANGUR
í eftirfarandi grein er fjallað um íslenskar bækur um lögfræðileg málefni, sem
gefnar voru út á árunum 1990-1996, að báðum árum meðtöldum. Grein þessi er
ekki hugsuð sem gagnrýni á umræddar bækur, heldur einungis sem upplýsinga-
og yfirlitsgrein; samantekt yfir íslenskar lögfræðibækur sem gefnar voru út á
tímabilinu. Gerð er stuttlega grein fyrir efni hverrar bókar, höfundi, útgefanda
og verði, ef upplýsingar um slíkt liggja fyrir.
A umræddu tímabili var töluverð gróska í útgáfu lögfræðibóka. Verður hér
um 90 rita getið, bækur gefnar út af bókaforlögum og höfundum sjálfum sem
og fjölrit, sem einkum hafa verið gefin út til kennslu, í flestum tilvikum í
lagadeild Háskóla íslands. Um nokkur rit lék vafi á hvort flokka ætti þau með
þeim ritum sem hér er getið. Atti það við um nokkur fjölrit sem gefin hafa verið
út til kennslu. Mörkuð var sú stefna að ekki er getið fjölrita sem síðar hafa birst
sem tímaritsgreinar.
í eftirfarandi samantekt verður tekið á efninu eftir réttarsviðum. Vel kann að
vera að ekki sé hér getið bóka sem vafalaust eiga heima í umfjölluninni og
skrifast slíkt alfarið á reikning greinarhöfundar, en tekið skal fram að reynt var
af fremsta megni að grafast fyrir um öll íslensk lögfræðirit sem gefin voru út á
tímabilinu.
2. LAGABÓKMENNTIR EFTIR RÉTTARSVIÐUM
2.1 Almenn lögfræði
Sigurður Líndal: Inngangur að lögfrœði. Þjóðréttarreglur. Fjölrit. 1994. 25 bls.
Sigurður Líndal: Inngangur að lögfrœði. Þjóðréttarreglur II. Löggjöf Evrópu-
sambandsins. Fjölrit. 1995. 85 bls.
Sigurður Líndal: Inngangur að lögfrœði. Þjóðréttarreglur III. Löggjöf Evrópska
efnahagssvœðisins. Fjölrit. 1995. 45 bls.
Sigurður Líndal: Inngangur að lögfrœði. Réttarheimildir. Sett lög - venjuréttur.
Fjölrit. 1996. 91 bls.
Sigurður Líndal: Inngangur að lógfrœði. Fordœmi. Fjölrit. 1996. 71 bls.
Sigurður Líndal prófessor hefur á undanförnum árum verið að vinna að riti
sem hann hefur kallað Inngang að lögfræði. Kaflar úr ritinu hafa verið gefnir út
í formi fjölrita og notaðir við kennslu á 1. ári í lagadeild Háskóla íslands. Um
er að ræða fimm fjölrit sem höfundur hefur á tímabilinu endurskoðað og gefið
út á ný. Hér að framan er getið nýjustu útgáfna, en öll komu ritin fyrst út árið
1994. Umfjöllunarefni þeirra eru eftirfarandi:
í ritinu Þjóðréttarreglur er m.a. gerð grein fyrir heimildum þjóðaréttar,
þjóðarétti sem réttarheimild samkvæmt innanríkisrétti, tengslum þjóðaréttar og
landsréttar, almennum reglum þjóðaréttarins, þjóðréttarsamningum, fullgild-
ingu og lögfestingu þeirra.
I ritinu Þjóðréttarreglur II - Löggjöf Evrópusambandsins, er m.a. gerð grein
185