Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 79
Á skrifstofu Antonin Scalia hœstaréttardómara: Garðar Gíslason hœstaréttardómari og
fararstjóri ferðarinnar, Antonin Scalia hæstaréttardómari, Dögg Pálsdóttir hrl. og
formaður Lögfrœðingafélags íslands, Pétur G. Thorsteinsson sendifulltrúi í Sendiráði
íslands í Wasington DC.
í hádeginu var haldið í íslenska sendiráðið í Washington. Sendiráðið flutti í
ný húsakynni fyrir nokkrum árum. Innréttingar eru hannaðar af íslendingum og
vekja mikla athygli fyrir sérstöðu sína. Einar Benediktsson sendiherra og Pétur
Gunnar Thorsteinsson sendiráðunautur kynntu starfsemi sendiráðsins, og þá
einkum ýmis lögfræðileg verkefni sem þar er leyst úr.
Eftir heimsóknina í sendiráðið skiptist hópurinn í tvennt. Annar hópurinn fór
í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og kynnti sér starfsemi hans. Þar bauð fulltrúi á
Norðurlanda- og Eystrasaltsskrifstofu sjóðsins, fr. Kerstin Heinonen, lögfræð-
ingana velkomna en síðan hélt Bruno Mauprivez lögfræðingur erindi um
verkefni sjóðsins og hlutverk hans. Auk þess var gestum sýnt myndband um
sjóðinn. Hinn hópurinn fór í útibú bandaríska lögmannafélagsins (American
Bar Association) í Washington, en félagið hefur höfuðstöðvar sínar í Chicago.
Robert D. Evans framkvæmdastjóri skrifstofunnar kynnti starfsemi félagsins.
Athygli vakti að þrátt fyrir nafn félagsins er það opið öllum lögfræðingum.
Fram kom í máli Evans að ýmsir hefðu áhyggjur af því hversu margir lögfræð-
ingar væru í Bandaríkjunum en þeir nálgast nú eina milljón. Samstarfsmenn
Evans skýrðu frá einstökum þáttum í starfseminni, umfangsmikilli blaða- og
bókaútgáfu og viðamiklum verkefnum á alþjóðavettvangi.
Síðla dags sameinuðust hóparnir að nýju á heimili Péturs Gunnars
Thorsteinssonar þar sem við þáðum veitingar og nutum gestrisni hans og konu
hans Birnu Hreiðarsdóttur.
219