Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 25
annað af því sem gerst hefur í forsjármálum en dóminn. Ef dómur er birtur skuli
gæta leyndar á nöfnum og upplýsingum sem bent geti til þess hverjir séu aðilar
máls eða hvert barn eða böm dómurinn varði.
2.3 Málsmeðferðarreglur í IX. kafla barnalaga
Þegar dómsmálaráðuneytið leysir úr ágreiningi um forsjá gilda einkum
eftirfarandi lagaákvæði í IX. kafla barnalaga auk málsmeðferðarreglna í VI.
kafla laganna sem fjallað hefur verið um hér að framan.
Samkvæmt 65. gr. laganna geta stjórnvöld leyst úr þeim málum sem tengjast
öðmm ríkjum ef barn, sem málið varðar, er búsett hér á landi eða ef sá sem
krafa beinist gegn er búsettur hér á landi en ákvæði milliríkjasamninga sem
ísland er aðili að ganga þó framar þessu lagaákvæði.
í 1. mgr. 69. gr. segir að aðilum máls beri að setja fram skýrar kröfur fyrir
stjórnvaldi og afla þeirra gagna sem stjórnvald telur þörf á til úrlausnar máls.
Ennfremur geti stjórnvald aflað gagna að eigin frumkvæði ef þörf krefji.2 Og í
2. mgr. segir að sinni úrskurðarbeiðandi eigi ítrekuðum kvaðningum eða
tilmælum stjómvalds um framlagningu gagna sé stjórnvaldi heimilt að synja
um úrlausn. Samkvæmt 3. mgr. skal veita úrlausn á grundvelli þeirra krafna og
gagna sem fyrir liggja ef gagnaðili sinnir ekki ítrekuðum kvaðningum eða
tilmælum stjórnvalds um gagnaöflun.
Samkvæmt 1. mgr. 70. gr. er aðilum máls heimilt að kynna sér skjöl og önnur
gögn sem málið varða en þessi réttur nær ekki til vinnuskjala sem rituð hafa verið
hjá stjómvaldi til eigin afnota í sambandi við meðferð málsins. Samkvæmt 2.
mgr. sömu lagagreinar er stjómvaldi heimilt að takmarka aðgang aðila að gögn-
um er veita upplýsingar um afstöðu bams ef hagsmunir bamsins krefjast þess.
Aðilar skulu eiga þess kost að tjá sig um mál áður er ákvörðun er tekin
samkvæmt 71. gr. og getur stjórnvald sett þeim ákveðinn frest til þess.
Úrskurðir stjórnvalds skulu vera skriflegir, sbr. 72. gr. Þar skal greina
úrlausnarefni, niðurstöðu og rökstuðning fyrir henni, þar á meðal lagaatriði er
niðurstaða byggist á og önnur atriði er máli skipta, þar á meðal kæruheimild og
þvingunarúrræði ef því er að skipta.
Úrskurð stjórnvalds skal senda aðilum máls með ábyrgðarbréfi, hann birtur af
einum stefnuvotti eða kynntur með öðmm sannanlegum hætti, sbr. 73. gr.
2.4 Málsmeðferðarreglur í X. kafla barnalaga
í þessum kafla laganna er aðeins ein lagagrein, 75. gr. í henni er fjallað um
það hvernig forsjá barns verður komið í hendur forsjáraðila. Þar segir að þegar
ákvörðun er fengin um forsjá barns og sá sem bam dvelst hjá neitar að afhenda
það réttum forsjáraðila geti forsjáraðili beint til héraðsdómara beiðni um að
2 í athugasemdum með þessari lagagrein kemur fram að um gagnaöflun eigi svipuð viðhorf
við sem um meðferð mála fyrir dómstólum, sbr. 60. gr. Alþingistíðindi A 1991-1992 bls.
1182.
165