Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 60

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 60
Sigurður Líndal. Réttarsaga. Heimildafrœði. Alþingi á þjóðveldisöld - Megiit- drœttir í réttarsögu íslands. Fjölrit. 1994. 60 bls. Fjölritið var gefið út til kennslu við lagadeild HÍ og þar eru viðfangsefnin þrjú. Stutt umfjöllun er fremst um heimildafræði í tengslum við réttar- sögulegar rannsóknir. I öðru lagi er þar að finna grein um Alþingi á þjóðveldis- öld, þar sem gerð er grein fyrir megineinkennum stjórnskipunar germanskra þjóða, landnámi Islands, upphafi allsherjarrrkis, sendiför Úlfljóts, vali á þingstað, goðum og goðorðum, vorþingum, Alþingi, alþingistíma og þing- helgun, alþingisstaðnum, lögsögumanni, lögréttu, skráningu laga, hlutverki dómstóla, dómaraskilyrðum, fjórðungsdómum, fimmtardómi, almennum einkennum á réttarfarinu, málsaðilum og forræði sakar, sönnunaraðferðum og sönnunargögnum, málsmeðferð fyrir dómstólum og loks helstu þjóðfélags- hugmyndum sem birtast í íslenska þjóðveldinu. Greinin um Alþingi á þjóðveldisöld var gefin út af Alþingi árið 1995. í þriðja lagi er fjallað um megindrætti í réttarsögu íslands. Þar er fjallað um landnám og upphaf allsherjarríkis, skráningu laga, fjallað er um þegar íslendingar gengu Noregs- konungi á hönd, Jónsbók og átök um stjórnskipun tímabilið 1280-1319. Þá er fjallað um konungsvald og þingstjórn 1319-1662, siðbreytingartíma 1541- 1551, einveldi, norsku og dönsku lög á Islandi og réttarsagan fram til fullveldis og stofnunar Hæstaréttar rakin. 2.10 Sifja- erfða- og persónuréttur Armann Snœvarr. Erfðaréttur. Námssjóður Lögmannafélags íslands. 1991. 639 bls. Verð: 4.500 kr. Erfðaréttur eftir Armann Snævarr, fyrrv. hæstaréttardómara og prófessor, skiptist í tólf hluta og 54 kafla, og er þar að finna heildarúttekt á íslenskum erfðarétti. í fyrsta hluta er að finna aðfararkafla um erfðir og erfðarétt, í öðrum hluta er fjallað um ýmsar erfðaforsendur, í þriðja hluta um réttarheimildir í erfðarétti og viðhorf um beitingu þeirra, í fjórða hluta um lögerfðir og í fimmta hluta óskipt bú. í sjötta hluta er fjallað um bréferfðir, erfðaskrár og aðra erfðagerninga, í sjöunda hluta um dánargjafir og erfðasamninga, í áttunda hluta er fjallað um samninga um væntanlegan arf, erfðaafsöl og höfnun arfs, fyrirfram greiddan arf og brottfall erfðaréttar, í níunda hluta er fjallað um erfðareglur og skiptameðferð og tímamörk um vitjun arfs, í tíunda hluta lagatengsl og lagaskil og alþjóðlegan einkamálarétt, í ellefta hluta er gerð grein fyrir sérreglum urn erfð að ættaróðali og erfðaábúð og í tólfta hluta er fjallað um sköttun á erfðafé. Dóma- laga- og atriðisorðaskrár fylgja og auk þess ítarleg skrá um rit og ritgerðir í erfðarétti. 200
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.