Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Síða 17

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Síða 17
skýrslunni enn ein taflan (tafla 4, ekki birt hér) sem gerði ráð fyrir að í öllum tilvikum fylgdi réttur til greiðslna úr almannatryggingum. Niðurstaða slíkrar framsetningar varð sú að stuðullinn þyrfti að vera á bilinu frá 6,4 - 10,6 svo að bætur samkvæmt yngra kerfi teldust „fullar bætur“ miðað við eldra kerfi. Loks var bent á að tjónabætur hafi í nokkrum dómum Hæstaréttar, þar sem fjallað var um hátt örorkustig, verið ákveðnar með „hliðsjón“ af lífeyrisréttindum tjónþola. 8. NIÐURSTAÐA MEIRIHLUTANS Niðurstöður meirihlutans fólust í heildarmati þeirra atriða, sem tilgreind voru í töflum 3 og 4. Af þeim ástæðum sem áður eru raktar þótti ekki réttmætt að telja bætur frá þriðja manni vega það mikið, að þær ættu að ráða miklu í niðurstöðum. Til að viðhlítandi samræmi fengist milli bótauppgjöra samkvæmt nýju skaða- bótalögunum og þess, sem gilti samkvæmt eldri reglum, taldi meirihlutinn rétt að mæla með því, að margfeldisstuðull 1. mgr. 6. gr. laganna yrði ákveðinn 10,0. Rétt er að árétta, að við mat sitt og samanburð bótakerfanna tók meirihlutinn ekkert tillit til áhrifa breyttra reglna um örorkumöt, sem felast í skaðabóta- lögunum. Fyrir liggur að breytingin á matsgrundvellinum, ein og sér, hefur haft mikil áhrif til lækkunar skaðabótagreiðslna, einkum þar sem örorkustig er lágt. Vakin skal athygli á, að skýrslan var samin við þær aðstæður, að tjónsuppgjör fóru fram miðað við 6% afvöxtun framtíðartekna. Hefðu bætur eldra kerfisins verið reiknaðar samkvæmt 4,5% afvöxtun, eins og dómur Hæstaréttar 30. mars 1995 kvað á um, hefðu bæturnar reiknast hærri og því leitt til enn hærri margföldunarstuðuls en ella. Um þetta efni vísast nánar til síðari greinar. 9. VIÐHORF MINNIHLUTANS Niðurstaða minnihluta nefndarinnar varð sú, að hann taldi ekki efni til að breyta nýsettum skaðabótalögum að svo komnu og lýsir hann áliti sínu þannig: Hann benti á að athuga þyrfti betur greiðslur frá þriðja manni til tjónþola við samanburð bótakerfanna ásamt ákvæðum nýju skaðabótalaganna um þetta efni. Eftir hinni almennu reglu skaðabótaréttarins bæri að draga frá heildartjóni fjár- greiðslur frá þriðja manni sem væru afleiðingar tjóns. Við ákvörðun á margföld- unarstuðli til útreiknings bóta fyrir varanlega örorku og missi framfæranda hefði stuðullinn öðrum þræði verið ákveðinn með hliðsjón af því að tjónþolar héldu almennt fullum rétti til skaðabótafjár samhliða óskertum rétti til greiðslna frá almannatryggingum og vátryggjendum. Þá væri að finna örorkutryggingar hjá líf- eyrissjóðunum. Hjá SAL-sjóðunum og fleiri sjóðum væri miðað við 40% örorku. í málinu lægju fyrir ítarlegir útreikningar tryggingastærðfræðings á ýmsum dæmum er sýndu breytingar á ráðstöfunartekjum tjónþola við slys, bæði til hækk- unar og lækkunar, án þess að tillit væri tekið til greiðslu skaðabóta. í nýlegum dómum Hæstaréttar hafi verið „höfð í huga“ eða „litið til“ þessa réttar til örorkulífeyris við mat á bótum, þótt ekki væri komin festa á þá dómaframkvæmd. Af þessum sökum beri að taka tillit til framanritaðs í samanburði bótakerfanna. 157
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.