Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 55

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 55
við greiðslu efndabóta, kröfur um greiðslur sem eru persónulegs eðlis, rétt til að afturkalla pöntun, höfnun greiðslu og skyldu samningsaðila til að draga úr tjóni sínu, framkomu kröfuhafa og loks rétt og skyldu skuldara til þess að bæta úr galla eða vanheimild. Þorgeir Örlygsson. Dómareifcmir í kröfurétti I. Fjölrit. 1994. 33 bls. Dómareifanir í kröfurétti voru gefnar út sem handrit til kennslu við lagadeild HI. Þar er að finna reifun á 31 dómi er varðar heimild seljanda í fasteigna- kaupum til þess að gjaldfella ógreiddar eftirstöðvar kaupverðsins, þ.m.t. skuld samkvæmt óútgefnu skuldabréfi fyrir eftirstöðvum. Páll Sigurðsson. Leiguréttur I - Meginreglur íslensks réttar um leigusamninga auk nokkurra sérsviða. Háskólaútgáfan. 1995. 228 bls. Verð: 3.335 kr. í bókinni Leiguréttur I er fjallað um þau atriði, sem talist geta einkenni á öllum leigusamningum. Bókin skiptist í tvo hluta og 15 kafla. I fyrri hlutanum er fjallað um almennar réttarreglur á réttarsviðinu, gerð grein fyrir megin- hugtökum og einkennum leigusamninga, helstu tegundum leigusamninga, helstu skyldum aðila, umráða- og nýtingarrétti leigutaka yfir leiguandlagi, aðilaskiptum af hálfu leigutaka, áhættunni af því, að leiguandlag skemmist, farist eða rými, vanefndum leigusamninga og vanefndaúrræðum og réttar- stöðunni við andlát, greiðslustöðvun eða gjaldþrot aðila. í síðari hlutanum er fjallað um leigu á landi, leiguábúð jarða og grunnleigusamninga. ítarlegar og hefðbundar skrár fylgja, en auk þess er að finna sérstaka skrá yfir rit eftir höfund bókarinnar. Viðar Már Matthíasson. Dómar um fasteignakaup. Bókaútgáfa Orators. 1996. 559 bls. Verð: 5.500 kr. í bók Viðars Más Matthíassonar prófessors eru reifaðir dómar, sem tengjast yfirfærslu eignarréttar að fasteignum, einkum fyrir kaup og skipti. Um efnistök og val á dómum segir höfundur í inngangi að leitast hafi verið við að taka alla dóma, þar sem álitaefnið varðaði með einhverjum hætti réttarstöðuna milli kaupanda og seljanda í fasteignakaupum. Var þá fyrst og fremst miðað við kröfuréttarsamband þeirra. í sumum tilvikum taldi höfundur rétt að ganga lengra og taka t.d. með dóma varðandi forkaupsrétt og dóma er varða byggingarsamvinnufélög og réttarstöðu félagsmanna í þeim. Dómareifanirnar eru ítarlegar og uppsetning reifana er í tímaröð, án kaflaskiptinga, og dómunum gefin númer sem vísað er til í skrám ritsins. Við upphaf hverrar reifunar eru málsaðilar tilgreindir og heiti þeirrar fasteignar sem málið varðar. Dómaskrá og lagaskrá fylgir og auk þess ítarleg atriðisorðaskrá. 195

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.