Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 56

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Page 56
2.6 Refsiréttur Jónatan Þórmundsson. Viðurlög við afbrotum. Bókaútgáfa Orators. 1992. 381 bls. Verð: 5.585 kr. Rit Jónatans Þórmundssonar prófessors, Viðurlög við afbrotum, skiptist í 10 þætti. I fyrsta þætti er lýst helstu einkennum viðurlagakerfisins, baksviði og þróun, bæði hér á landi og almennt á Vesturlöndum. I öðrum þætti er fjallað um inntak refsingar, réttlætingu hennar og markmið og flokkun og samanburð viðurlaga. Fjallað er um refsivist og refsivistarstofnanir í þriðja þætti, öryggis- gæslu og önnur úrræði í fjórða þætti. Fimmti þáttur fjallar um frádrátt gæslu- varðhaldsvistar, sá sjötti um fésektir og sektafullnustu, sjöundi um ákvörðun refsingar, áttundi um ítrekun og níundi um brotasamsteypu. Tíundi og síðasti þáttur bókarinnar fjallar um lok refsiábyrgðar og brottfall viðurlaga. Bókinni fylgja atriðisorðaskrá, lagaskrá, dómaskrá og heimildaskrá. Jónatan Þórmundsson og Ragnheiður Harðardóttir. Alþjóðlegur refsiréttur - safn alþjóðasamninga, laga og reglugerða. 3 fjölrit. 1995. 445 bls. Verð: 1. bók 1.720 kr., 2. bók 1.590 kr., 3. bók 2.260 kr. I þremur fjölritum hafa Jónatan Þórmundsson prófessor og Ragnheiður Harðardóttir lögfræðingur tekið saman safn helstu alþjóðasamninga, íslenskra laga og reglugerða ásamt nokkru efni til viðbótar, í tilefni af námskeiði í alþjóðlegum refsirétti við lagadeild HI. I fyrsta heftinu er annars vegar að finna samninga o.fl. varðandi alþjóðlega réttaraðstoð í sakamálum og hins vegar varðandi hópmorð, pyndingar og aðra glæpi gegn grundvallarmannréttindum. í öðru heftinu er annars vegar að finna samninga o.fl. varðandi glæpi gegn friði, stríðsglæpi og aðra glæpi gegn mannúð og mannúðarlögum og hins vegar samninga o.fl. varðandi hryðjuverk, flugrán og gíslatöku. í þriðja og síðasta heftinu er að finna samninga o.fl. varðandi fíkniefnaviðskipti og peningaþvætti. Jónatan Þórmundsson. Afbrot og refsiábyrgð - 1. og 2. hluti. Fjölrit. 1995. Samtals 224 bls. Verð: 1. hluti 3.135 kr. í fjölritunum Afbrot og refsiábyrgð, 1. og 2. hluta, er fjallað um almenna hluta refsiréttarsins. I fyrsta hluta er fjallað í inngangi um sakfræði og skyldar greinar, hugtakið refsirétt, grundvallarhugtök refsiréttar, réttarheimildir o.fl. Þá er gerð ítarleg grein fyrir hugtakinu afbrot, þar sem er að finna umfjöllun um formkönnun afbrotahugtaksins, efniskönnun afbrotahugtaksins og refsiskilyrði tengd verknaðarlýsingu. Þá er fjallað um brotaeindir og flokkun afbrota, tilraun til afbrota og afturhvarf og loks hlutdeild í afbrotum og samverknað. í öðrum hluta er fjallað um refsiheimildir og refsinæmi, skýringu refsilaga, ólögmæti og hlutrænar refsileysisástæður, neyðarvörn, neyðarrétt, samþykki og loks lög- mæta sjálftöku og gertæki. 196

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.