Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Side 71

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1997, Side 71
í bókum Páls Sigurðssonar prófessors, Lagaþættir, er að finna safn greina af ýmsum réttarsviðum. í fyrstu bókinni er að finna sautján greinar. Tólf af þeim fjalla um margvísleg efni úr fjármunarétti: tvær þeirra eru um eignarrétt yfir landi, aðrar um valin efni úr almennum samningarétti og kauparétti, svo sem um sérstæðar og/eða víðtækar ógildingarheimildir samningaréttar, og enn aðrar um tilteknar tegundir samninga, svo sem um fjármögnunarleigu, gjafagerninga, samninga um lán til afnota og geymslusamninga. Þá er þar að finna grein um fyrningu bótaréttar vegna galla í seldum húsum og í byggingarefni, en tvær greinar hafa að geyma gagnrýni á hæstaréttardóma um álitaefni á sviði fjármunaréttar. Tvær greinar eru af vettvangi umhverfisréttar og jafnframt greinar um valin efni úr stjómskipunarrétti, almennri lögfræði og þjóðarétti. Lagaþættir II er safn 19 greina. Átta greinar fjalla um erlendan rétt og samanburðarlögfræði. Aðrar greinar fjalla um margvísleg lögfræðileg og réttarsöguleg málefni. Nefna má ítarlega umfjöllun um þróun bótaréttar og sönnunarréttar og um misneytingu sem ógildingarástæðu í samningarétti. Þá er í bókinni grein um sögustefnuna í þýskri lögfræði og áhrif hennar og jafnframt þættir um merka fræðimenn. Lagaþættir III er safn 27 greina sem flestar fjalla um efni sem tengist fjármunarétti. Tólf greinar eru frumbirtar en aðrar greinar hafa birst áður, en eru rækilega endurskoðaðar af höfundi. I fyrri hluta bókarinnar em sextán greinar um sjórétt og skyld efni. Má þar m.a. nefna greinar um galla í skipakaupum og réttaráhrif þeirra, samninga um nýsmíði og viðgerðir á skipum, rekstrarábyrgð útgerðarmanns, skipaleigusamninga, um alþjóðasáttmála varðandi björgun skipa og grein varðandi lagaskilareglur á sjóréttarsviði. í síðari hluta bókarinnar era m.a. greinar um margvísleg efni á sviði fjármunaréttar, einkum samninga- og kauparéttar. Má þar nefna greinar um nýmæli í kauparétti, skaðsemisábyrgð, neytendalán og lánsviðskipti og um ný lög um framkvæmd útboða. Einnig er fjallað um dóma Hæstaréttar varðandi skuldbindingargildi samninga, um beitingu 36. gr. samningalaga, greinar um réttarvemd einkalífs, um réttarstöðu íslensku þjóðkirkjunnar og um mannanöfn og nafnrétt. Afmœlisrit Gaukur Jöruudsson sextugur 24. september 1994. Bókaútgáfa Orators. 1994. 667 bls. Verð: 4.700 kr. í bókinni er að finna 25 greinar af ýmsum fræðisviðum. Þær eru: Er bóta- ábygð hins opinbera vegna gáleysis starfsmanna þrengri en vinnuveitenda- ábyrgð almennt e. Arnljót Bjömsson, Fjölskylda og fjölskyldulíf í ljósi 8. og 12. gr. mannréttindasáttmála Evrópu e. Ármann Snævarr, Einkaréttaráhrif Mann- réttindasáttmála Evrópu og skyldur ríkja til athafna skv. sáttmálanum e. Björgu Thorarensen, Hugleiðingar um framsal ákvörðunarvalds stjómsýslunefnda e. Bjöm Þ. Guðmundsson, Evropakonventionens inkorporering med svensk rátt e. Hans Danelius, Evrópuréttur og vernd grundvallarréttinda e. Davíð Þór Björg- 211

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.