Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Blaðsíða 12

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Blaðsíða 12
umræður með þátttöku 6 lögfræðinga auk umræðustjóra. Flutti undirritaður eins konar inngangserindi að þeim umræðum, þar sem vakið var máls á ýmsum efn- um sem áhugavert gæti verið að ræða. Ekki var óskað eftir að ég tæki þátt í pall- borðsumræðunum sjálfum. Er sjálfsagt allt gott að segja um þetta fyrirkomulag á fræðafundi, þó að það sé frekar óvenjulegt.2 Eins og kunnugt er, hef ég á undanförnum árum gagnrýnt opinberlega ýmsa þætti í meðferð dómsvalds í landinu, einkum á vettvangi Hæstaréttar. Hef ég leitast við að vera málefnalegur, þ.e.a.s. ég hef jafnan útskýrt á hvaða efnisatrið- um gagnrýnin hefur byggst. Ég hef einskorðað hana við dæmi þar sem mér hef- ur þótt dómstóllinn sneiða með augljósum hætti hjá réttum aðferðum við dóm- sýsluna. Ég hef aldrei gagnrýnt verk dómstólsins í tilvikum þar sem „frambæri- legur“ ágreiningur hefur verið um niðurstöður hans. Auk þessa hef ég að undanförnu vakið opinberlega máls á kenningu, sem mun vera kennd við laga- deild Háskóla Islands, þar sem segir að oft séu til fleiri en ein jafnrétt niðurstaða á sama lögfræðilega úrlausnarefninu. Dómarar eigi oft val um þær réttarheim- ildir sem þeir beiti og þar með um niðurstöðuna. Ég hef talið að þessi sjónarmið fái ekki staðist. Við úrlausn lögfræðilegra úrlausnarefna verði menn jafnan að ganga út frá því, að ein niðurstaða sé rétt. Vék ég m.a. að sjónarmiðum mínum um þetta í erindinu á fundinum 7. nóvember. Einn þátttakenda í pallborðsumræðunum var prófessor Sigurður Líndal, sem um langt árabil hefur kennt almenna lögfræði og lögskýringar við lagadeildina. Ekki er ofsagt, að Sigurður hafi með framgöngu sinni á fundinum komið flest- um fundarmönnum á óvart. Hafði hann flest á hornurn sér, þótt framar öðru hafi persóna mín farið fyrir brjóstið á honum. Ekki varð séð að hann hefði fengið nokkurt tilefni til að reiðast af því sem fram hafði farið á fundinum. Kallaði hann mig lýðskrumara og fleiri illum nöfnum. Hann taldi mig eina lögfræð- inginn í allri veröldinni, sem teldi að rétt niðurstaða í hverju lögfræðilegu úr- lausnarefni væri aðeins ein. Raunar sneri hann út úr orðum mínum svo þau hentuðu betur málflutningi hans.3 Þá sendi hann stjórnmálamönnum almennt skeyti sín. Var á prófessornum að skilja, að þeir hefðu aldrei nokkurt vit á því sem þeir segðu. Þessar sendingar virtust ekki síst ætlaðar forsætisráðherra landsins vegna ummæla hans urn hina margfrægu dóma í svonefndum Guð- mundar- og Geirfinnsmálum. Ég hef orðið allnokkra reynslu af málflutningi fyrir dómi. Minnist ég þess ekki að hafa heyrt málflytjanda í kappi sínu missa taumhald á sjálfum sér með þeim hætti sem prófessorinn gerði á fundinum. Allt þetta var því furðulegra, þegar haft er í huga að hér voru menn staddir á akademiskum fundi, þar sem málefnið hefði átt að sitja í fyrirrúmi. 2 Frá fundi þessum var sagt í Morgunblaðinu 10. nóvember 1998. 3 Þessari sérkennilegu uppákomu og eftinnálum hennar er lýst í grein eftir Hrein Loftsson hæsta- réttarlögmann, sem birtist í Morgunblaðinu 22. desember 1998. í kjölfarið fylgdu tvo næstu daga á eftir ágætar greinar eftir Hrein, þar sem hann lýsir kenningum fræðimannsins Ronalds Dworkins um þetta efni, en prófessor Sigurði Líndal hafði ekki þótt mikið til þeirra koma á fundinum 7. nóv- ember 1998. 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.