Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Blaðsíða 60

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Blaðsíða 60
seljanlegra veiðiheimilda. Beint liggur við að taka hann af útgerðarfyrirtækjum og dreifa um rikissjóð. En margar og flóknar ástæður eru til þess, að þetta þarf ekki að vera heillaráð. Ein er, að þeir, sem eru í bestri aðstöðu til að hafa áhrif á gæslumenn ríkissjóðs, eru ekki alltaf þeir, sem helst þurfa á fénu að halda eða verðskulda það. Önnur er, að arðurinn hverfur ekki í höndurn 15-20 þúsund hluthafa í útgerðarfyrirtækjum, heldur ávaxta þeir hann á einhvern hátt, nota hann ýmist til neyslu eða íjárfestinga að ógleymdum venjulegum skattgreiðsl- um. A þetta benti Adam Smith í hinu mikla riti sínu um Auðlegð þjóðanna. Hann taldi, að í frjálsum viðskiptum yrði niðurstaðan að lokum svipuð því, að öllum náttúrugæðum hefði verið skipt jafnt í upphafi. „í hverjum manni tak- markast löngunin í mat af því þrönga rými, sem er í mannlegum maga,“ sagði hann, „en löngun hans til skrauts og þæginda í húsakynnum sínum, klæðaburði, útbúnaði og innanstokksmunum virðist ekki eiga sér neinn endi eða ákveðin takmörk. Þess vegna eru þeir, sem hafa yfir meiri matvælum að ráða en þeir geta sjálfir neytt, alltaf tilbúnir að skipta afganginum eða því, sem kemur í sama stað niður, verðinu á þessum afgangi, fyrir svölun langana sinna af þessu seinna tæi“.61 Smith kemur hér að kjarna málsins, sem er sá, að auðmenn njóta aldrei einir góðs af batnandi hag. Aðrir njóta hans jafnan líka. Fiskur, sem íslenskir útgerðarmenn veiða, hverfur ekki ofan í þá, heldur selja þeir hann og nota and- virðið í útgerðarkostnað og ýmist í neyslu eða fjárfestingu. Fyrr eða síðar skilar fiskveiðiarðurinn sér þannig til annarra. Það skiptir hins vegar höfuðmáli, hvernig fiskveiðiarðurinn skilar sér til annarra, hvort hann minnkar eða stækkar á leiðinni. Hin raunverulega spurning er því sú, hvorir séu líklegri til þess að varðveita og ávaxta fiskveiðiarðinn skynsamlega, tímabundinn þingmeirihluti atvinnustjórnmálamanna eða 15-20 þúsund hluthafar í útgerðarfyrirtækjum, síðar meir jafnvel enn fleiri hluthafar.62 Ef sá skilningur á þjóðareignarákvæði laganna frá 1990 um stjórn fiskveiða er réttur, að nýta skuli sjávarfang á íslandsmiðum í samræmi við þjóðarhag, þá ber að svara þeirri spurningu, og geta fáir verið í vafa um hið rétta svar. 61 Adam Smith: Auðlegð þjóðanna, I., XI., c., 132. bls. Sbr. einnig Adam Smith: The Theory of Moral Sentiments, IV., 1., 10., 184.-185. bls., þar sem þessi höfuðsmiður hagfræðinnar kveður jafnvel enn sterkar að orði. 62 í stefnuræðu sinni haustið 1998 setti Davíð Oddsson forsætisráðherra fram þá hugmynd, að útgerðarfyrirtækin skiluðu þjóðarbúinu hluta af hinni nýju eign sinni, en ekki með greiðslum í ríkissjóð, heldur afslætti á eignaraðild eða hlutafjáreign. Með öðrum orðum yrði þjóðin eða sá hluti hennar, sem áhuga hefði á að hætta einhverju til, meðeigandi núverandi útgerðaraðila. Þetta væri ekki órökréttara en þegar bankar selja almenningi hlutafé á verði, sem talið er undir markaðsverði. Sjá „Stærstur hluti þjóðarinnar taki þátt í útgerð" á baksíðu Morgunblaðsins 2. október 1998. Morgunblaðið, sem barist hefur hatrammlega gegn núverandi skipan fiskveiða, tók mjög vel í hugmynd forsætisráðherra, sbr. „Reykjavíkurbréf 3. október" íMorgunblaðinu 4. október 1998. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.