Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Blaðsíða 17

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Blaðsíða 17
3. UM „TÆKAR“ LAUSNIR Mér sýnist sem prófessor Sigurður Líndal sé, a.m.k. hér á landi, aðaltalsmað- ur kenningarinnar um val á réttarheimildum og lagasetningarvald dómstóla. Ég mun hér síðar víkja að nokkru því sem hann hefur látið frá sé fara á prenti um þetta. En fleiri lögfræðingar en hann hafa tjáð sig í þessa átt. Davíð Þór Björg- vinsson, nú prófessor við lagadeild Háskóla Islands, skrifaði grein í Úlfljót 4. tbl. 1995, sem hann nefndi „Völundarhús hins júridíska þankagangs". Grein þessi er að verulegu leyti tileinkuð mér og nokkrum skoðunum mínum á lögfræðilegum málefnum. Segir Davíð mig vera eins konar „vélhyggjumann“ í afstöðu minni til hinnar lögfræðilegu aðferðar, m.a. vegna þeirrar skoðunar minnar, að til sé ein lögfræðilega rétt niðurstaða í hverju máli. I greininni segir m.a. svo: Andstæðar kenningar við vélhyggjukenningar sem ég nefndi svo ganga nefnilega út á það að ekki sé til lögfræðileg aðferð sem er að öllu leyti hlutlaus og að til séu fleiri en ein lögfræðilega rétt lausn á sömu lagaþrætu. Það eigi kannski ekki við um öll mál, en a.m.k. hin erfiðari (leturbr. mín). Það merkilega er aftur á móti að það virðist sem hægt sé að aðhyllast báðar kenningarnar samtímis. Og ennfremur: Mín skoðun er sú, og sjálfsagt hafa margir aðrir sett svipað fram áður, að niðurstaða í erfiðu dómsmáli sé ákvörðun sem byggist á vali milli tveggja eða fleiri niðurstaðna sem geta talist lögfræðilega tækar. Af þessum texta virðist mega ráða, að höfundur telji meginreglurnar í að- ferðafræði lögfræðinnar breytast, eftir því hve mál séu erfið viðureignar! Það hefði svo verið fróðlegt að fá að heyra meira frá höfundi um hvaða sjónarmið eigi að ráða ákvörðuninni um niðurstöðuna, þegar unnt er að velja milli tveggja eða fleiri tækra niðurstaðna, eins og hann kemst að orði. Nokkra vísbendingu sýnist mér að hafa um þetta í framhaldi textans í greininni, því þar virðist höf- undurinn ganga út frá því að meðal fleiri en einnar tækrar niðurstöðu sé ein alltaf best. Það sé bara svo erfitt að finna hana alltaf. Ekki er annað að sjá en höfundur eigi við að hún sé þá best í lögfræðilegum skilningi. Sé reynt að fletta roðinu utan af þessum hugsunum, sýnist mér höfundur aðeins vilja segja: í lögfræðilegum úrlausnarefnum er ein niðurstaða ávallt best. í erfiðum málum kunna að vera til fleiri niðurstöður sem telja má tækar. Sé þetta réttur skiln- ingur á kenningum Davíðs er ekki um neinn umtalsverðan ágreining að ræða milli okkar.12 Mun ég skýra þetta nánar hér nokkru síðar. 12 í hinum tilvitnuðu orðum Davíðs Þórs Björgvinssonar virðist hann telja að ekki sé til „að öllu leyti hlutlaus" lögfræðileg aðferð. Ég tel að gera verði ráð fyrir að slík aðferð sé til, þó að hún sé örugglega oft erfið í meðförum. Hins vegar eru réttarheimildirnar sjálfar ekki hlutlausar. Hvort sem réttarheimildin heitir sett lög, eðli máls, meginreglur laga eða eitthvað annað, felst ávallt í henni einhvers konar afstaða til þess málefnis sem um ræðir. Þeirri afstöðu ber dómara að fylgja fram, þó að hann sjálfur kunni að hafa aðra. Ekki veit ég, hvort mér leyfist að telja, að þetta sé það sem prófessorinn vildi sagt hafa. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.