Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Qupperneq 24

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1999, Qupperneq 24
Tilvitnaður dómur Hæstaréttar laut að því álitaefni hvort skipstjóri gæti borið hlutlæga refsiábyrgð vegna fiskveiðibrota. Niðurstaða Hæstaréttar er harla at- hyglisverð fyrir margra hluta sakir og er tilefni þessarar ritsmíðar. í henni verður stuttlega rakin þróun hlutlægrar refsiábyrgðar einstaklinga með könnun á dómum Hæstaréttar er varða ætluð brot skipstjóra á fiskveiðilöggjöfmni. Sérstaklega verður vikið að áðurnefndum dómi frá 1995 og færð bæði lagatæknileg og refsi- pólitísk rök fyrir því að vafasamt sé að niðurstaða dómsins fái staðist.1 2. HEFÐBUNDIN OG AFBRIGÐILEG TILHÖGUN REFSIÁBYRGÐAR I upphafi þykir rétt að fara nokkrum almennum orðum um „hefðbundna“ til- högun refsiábyrgðar og undantekningar frá henni. Það er meginregla í íslenskum rétti að einstaklingur verður ekki sakfelldur fyrir refsiverðan verknað, nema uppfyllt séu skilyrðin um (1) refsinæmi (actus reus), (2) saknæmi (mens rea) og (3) ólögmæti. Ef refsiákvæði áskilur þessi þrjú refsiskilyrði hefur oft á tíðum verið talað um að tilhögun refsiábyrgð- arinnar sé „hefðbundin“.2 Verknaður (athöfn eða athafnaleysi) er refsinæmur ef hann er talinn falla undir verknaðarlýsingu lagaákvæðis er hefur að geyma háttemisreglu, sem löggjafinn hefur ákveðið að varði refsingu í skilningi 31. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 eða öðmm viðurlögum, svo sem sviptingu ökuréttar eða upptöku eigna, ef brotin er. Slrkt ákvæði felur í sér refsireglu sem dómstólar verða að geta byggt á ef sakfella á einstakling í opinberu rnáli og ákvarða honum viðeigandi refsingu eða önnur viðurlög, sbr. 1. gr. almennra hegningarlaga.3 Skilyrðið um ólögmæti verknaðar hefur almennt verið skilgreint neikvætt í íslenskum refsirétti. Er þá til þess litið að þótt háttsemi eigi undir tiltekið refsiákvæði og sé því refsinæm, það er refsiverð á ytra borði, kunni sérstakar ástæður að réttlæta háttsemina og gera hana lögmæta og þannig refsilausa, svo sem ef reglur um neyðarvörn eða neyðarrétt eiga við, sbr. 12. og 13. gr. al- rnennra hegningarlaga.4 1 Ekki verður vikið að sjónarmiðum um refsiábyrgð lögaðila í greininni. 2 f riti Jónatans Þórmundssonar, Afbrot og refsiábyrgð, 1. hluti, 2. útgáfa, Reykjavík, 1995, bls. 23-24, tilgreinir Jónatan einnig skilyrðin um sakhæfi sakbornings og gildissvið refsilaga, sem efniseinkenni í hefðbundinni tilhögun refsiábyrgðar. Sjá hér einnig eftir sama höfund: Viðurlög við afbrotum, bls. 64, Bókaútgáfa Orators, Reykjavík, 1992. Það er vafa undirorpið hvort sakhæfi verði talið eitt af efniseinkennum hefðbundinnar tilhögunar refsiábyrgðar, enda verður það einnig talið einkenni afbrigðilegrar tilhögunar refsiábyrgðar. Einstaklingur, sem gerist refsiábyrgur á hlut- lægum grunni, verður einnig að öðru leyti að uppfylla skilyrðin um persónulegt og geðrænt sakhæft samkvæmt 14., 15. og 17. gr. aimennra hegningarlaga nr. 19/1940. 3 Rétt er að benda á mismunandi útfærslu refsiákvæða í almennum hegningarlögum annars vegar og sérrefsilögum hins vegar. I hinum fyrrnefndu er verknaðarlýsingum og refsireglum steypt saman í eina heild. í hinum síðamefndu eru verknaðarlýsingamar hins vegar aðskildar frá refsireglunum, sem em að meginstefnu til að finna í lokaákvæðum laganna. 4Jónatan Þórmundsson, sama rit, bls. 24 18
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.